Til að bregðast við þeirri alvarlegu stöðu sem uppi hefur verið í samgöngumálum í Vestmannaeyjum síðustu vikur verður samningur um áætlunarflug milli Eyja og Reykjavíkur framlengdur og flugferðum fjölgað í tvær á dag, frá og með fimmtudeginum 30. apríl. Þá standa vonir til að hægt verði að opna Landeyjahöfn á ný í næstu viku, gangi öldu- og veðurspár eftir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá innviðaráðuneytinu.
Þar segir jafnframt að til lengri tíma sé búist við miklum úrbótum í rekstri hafnarinnar næsta haust þegar belgíski verktakinn Jan de Nul tekur við dýpkun, með mun öflugri búnaði og viðbragði en nú þekkist.
Undanfarnar vikur hafa aðstæður í Landeyjahöfn verið mjög erfiðar. Höfnin hefur verið lokuð frá því í janúar, of grunnt er í innsiglingu og óvenju óhagstæð veðurskilyrði hafa torveldað dýpkun. Þá kom upp bilun í Herjólfi sem gerir það að verkum að skipið hefur siglt á einungis einni vél. Viðgerð á vélinni er þegar hafin. Þetta hefur valdið truflunum á samgöngum, sem hafa haft mikil áhrif á íbúa og atvinnulíf í Eyjum.
Kannaður var möguleiki á að fá annað skip erlendis frá til að sinna dýpkuninni. Of langan tíma hefði tekið að fá skipið til landsins og sú leið því ekki talin líkleg til að bæta stöðuna. Nú þegar að óbreyttu hillir undir opnun Landeyjahafnar er staðan eftirfarandi:
Innviðaráðuneytið hefur beitt sér fyrir því í fjórgang að tímabil áætlunarflugs milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur verði framlengt, tvær vikur í hvert sinn, vegna ástandsins.
Ákveðið hefur verið að framlengja áætlunarflugið á ný og auka verulega tíðni flugferða. Ein ferð verður farin á morgun, 29. apríl, en frá og með næsta fimmtudegi, 30. apríl, og til 15. maí verður flogið tvisvar á dag, alla daga vikunnar.
Samkvæmt ölduspá er áætlað að dýpkun Landeyjahafnar geti hafist á ný seinni partinn á fimmtudag eða á föstudag. Miðað við spá, og ef ekkert óvænt kemur upp, gerir Vegagerðin nú ráð fyrir að ásættanlegt dýpi fyrir Herjólf verði komið í höfninni þann 7. maí nk. og hún verði þá opnuð fyrir siglingum.
Vegagerðin hefur hafið daglega uppfærslu um stöðuna á dýpkun Landeyjahafnar á vefnum umferdin.is. Eyjamenn og aðrir sem nýta sér samgöngur til og frá Eyjum eru hvattir til að fylgjast með á vefnum.
Vonir standa til að Herjólfur III geti verið kominn á haffæri þriðjudaginn 5. maí. Herjólfur III mun þá geta siglt og verið til afleysinga sem varaskip fyrir Herjólf IV, sem hefur siglt á skertum afköstum síðustu vikur.
Fyrr í vetur skrifaði Vegagerðin undir samning við Jan de Nul, nýjan verktaka sem mun taka við dýpkunaraðgerðum í Landeyjahöfn næsta haust. Gildir sá samningur árin 2026 til 2029. Í útboðinu voru tilboð metin ekki aðeins út frá tilboðsupphæð heldur einnig út frá tæknilegri getu þess skips sem boðið er til verksins. Skip Jan de Nul kom best út í þeim samanburði.
Jan de Nul er eitt stærsta verktakafyrirtæki í heiminum á þessu sviði og býr yfir öflugum búnaði sem eykur möguleika á að veita betri þjónustu við dýpkun í Landeyjahöfn en áður hefur þekkst. Þá á fyrirtækið mörg dýpkunarskip sem auðveldar viðbrögð, þurfi að bregðast við vegna óvæntrar alvarlegrar bilunar, eins og gerðist í vetur.