Á vef Vegagerðarinnar er farið yfir stöðuna í sjósamgöngum Eyjamanna í vetur. Lesa má umfjöllunina í heild hér að neðan.
Dýpkun í Landeyjahöfn þetta vorið hefur gengið óvenju illa og höfnin lokuð um nokkurt skeið og lengur en áður. Veður og sjólag undanfarnar vikur og mánuði hafa gert það að verkum að erfiðlega hefur gengið að dýpka nægilega mikið til að opna höfnina. Aftakaveður í apríl með miklum sandburði leiddi til þess að dýpi í hafnarmynninu varð minna en tveir metrar og því ekki unnt að dýpka nema á flóði.
Ölduhæð hefur undanfarnar vikur verið mun hærri en mörg ár á undan þannig að ekki hefur náðst að dýpka nægilega mikið fyrir Herjólf. Í venjuleg árferði hafa gefist margir dagar í byrjun mars sem hafa iðulega dugað til að ná dýpinu ásættanlegu fyrir Herjólf. Því er ekki að heilsa núna. Ölduspá næstu daga er ekki góð en vonast er til að hefja megi aftur dýpkun undir eða um helgina næstu. Ef ölduhæð verður góð má þess vænta að það náist að opna höfnina á ekkert of löngum tíma.
Unnið er að því að gera Herjólf III haffæran ef grípa þyrfti til hans einhverra hluta vegna.
Upplýsingar um stöðu dýpkunar munu birtast reglulega á vefnum umferdin.is
Dýpkun og sandburður í Landeyjahöfn hefur alltaf verið háð veðurfari.
Undanfarin ár hefur náðst að opna Landeyjahöfn í byrjun mars eða um miðbik mánaðarins og halda siglingum meira og minna opnum í Landeyjahöfn fram á haust.
Veturinn í vetur hefur verið með eindæmum erfiður vegna þrálátrar öldu yfir þeim mörkum sem hægt er að dýpka við.
Yfirleitt hafa gefist gluggar til dýpkunar í mars og þá oftast 4-6 dagar sem hafa dugað til þess að hægt hefur verið að opna höfnina. Sjá á myndinni hér fyrir neðan.
Upplýsingar um ölduhæð, sjávarfallaspá og fleira má finna á sjólagsvef Vegagerðarinnar sjolag.is

Bláa línana á línuritinu er ölduhæðin í ár, rauða línan þvert yfir er 1,5 m ölduhæð sem þarf fyrir dýpkun og appelsíngulu punktarnir er mælingar fyrri ára.
Þarna sést að ekki hefur verið almennilegur gluggi til dýpkunar frá því í byrjun janúar. Aðstæður hafa þannig verið mjög óvenjulegar miðað við undanfarin ár. Það sést vel að á fyrri árum hefur ölduhæðin verið lengi undir rauðu línunni og ölduhæð því góð til dýpkunar. Undanfarin ár hefur þetta góða tímabil varað töluvert lengi í fyrri hluta mars og því náðst að opna á þeim tíma.
Til viðbótar þessu hefur aldan í ár verið mikið að suð-austan sem veldur meiri uppsöfnun á sandi framan við höfnina, en þegar aldan er frá suð-vestri. Dýpið minnkaði því töluvert meira en í venjulegu árferði.
Almennt er miðað við að hægt sé að vinna við dýpkun í Landeyjahöfn þegar alda er um 1,7 m á dufli og undir 70 m á lengd (öldulengd) þegar dýpi í hafnarmynninu er -5,0 m.
Þegar dýpið er undir -5,0 m þá er dýpkun háð sjávarstöðu og eftir því hve dýpið er lítið eða mikið og ölduþröskuldurinn lækkar í 1,5 m. Þetta er vegna þess að aldan brýtur meira í hafnarmynninu eftir því sem það er grynnra.
Yfirleitt fer dýpið í hafnarmynninu ekki undir -2,5 til -3,0 og þá hefur undanfarin ár tekið 4-6 flóð við góðar aðstæður að koma dýpinu niður þannig að sjávarföll skipti minna máli og hægt að vinna allan sólarhringinn.
Eftir aftaka suð-austan storm um páskana fór dýpið niður í -1,9 m sem gerir það að verkum að vinnugluggarnir eru styttri og enn lægri öldur eru að brotna í hafnarmynninu.
Sjá mynd af mælingunum 11.03.2026, 14.4.2026 og eftir dýpkun 24.04.2026 neðst í þessari frétt.
Á myndunum sést að dýpið var þann 11. mars um -3,3 til -3,5 m en þann 14. apríl eftir aftakaveðrið var dýpið einungis -1,9 m. Þannig að skaflinn sem þurfti að vinna á var mun stærri en venjulega
Á dögunum 17.-27. apríl sl. vann Álfsnesið með hléum við dýpkun í hafnarmynninu og náði að koma skaflinum í um -2,7 m dýpi sem gerir vinnu í næsta glugga auðveldari, sjá mynd af dýpinu 24. apríl. Þannig að þegar færi gefst undir eða um helgina næst vonandi að vinna verkið hraðar.
Herjólfur
Vegagerðin ákvað þegar bilun kom upp í annarri af tveimur vélum í Herjólfi IV að færa Baldur til Vestmannaeyja til afleysinga þar sem viðbragðstími Baldurs er mjög stuttur. Í framhaldi af bilanagreiningu á Herjólfi IV var ákveðið að undirbúa að Herjólfur III gæti komið inn sem varaskip ef þörf væri á. Vel hefur gengið að undirbúa skipið til siglinga og er áætlað að áhöfn frá Herjólfi ohf. komi til Reykjavíkur í byrjun næstu viku til að undirbúa skipið til siglinga. Því miður hefur ekki tekist að skipuleggja þetta hraðar.
Herjólfur III ristir töluvert dýpra en Herjólfur IV og mun því að svo stöddu ekki geta siglt inn í Landeyjahöfn en gæti siglt til Þorlákshafnar.
Bilaða vél Herjólfs IV er komin á verkstæði í Hollandi þar sem hún verður yfirfarin og lagfærð. Beðið er eftir upplýsingum frá forsvarsmönnum viðgerðanna um hversu langan tíma verkið mun taka.


