ÍBV mætir Val í fyrsta leik úrslita
ÍBV sló út Hauka í undanúrslitum. Ljósmynd/Sigfús G. Guðmundsson

Kvennalið ÍBV í handbolta tryggði sér á dögunum sæti í úrslitum og mætir Val í dag. Leikurinn sem fer fram í N1-höllinni á Hlíðarenda hefst klukkan 15:00. Um er að ræða fyrsta leik í úrslitaeinvígi liðanna þar sem Íslandsmeistaratitillinn er undir.

Eins og fram hefur komið meiddist Amalia Frøland, markvörður ÍBV íí undanúrslitaleik liðsins gegn Haukum. Hún er með slitið fremra krossband í hné og verður hún ekkert með næstu mánuðina. Amalia hefur verið einn af bestu markvörðum Olís deildarinnar og er því ljóst að þetta er mikið áfall fyrir ÍBV. Ólöf Maren Bjarnadóttir er varamarkvörður liðsins en hún hefur átt frábærar innkomur í úrslitakeppninni og hjálpaði liðinu að komast í úrslitaeinvígið.

Handknattleiksdeild ÍBV hvetur stuðningsmenn til að fjölmenna á leikinn og skapa alvöru Eyjastemningu í stúkunni. „Þetta eru úrslit – þetta er stundin,“ segir í tilkynningu frá deildinni, þar sem lögð er áhersla á mikilvægi stuðnings úr stúkunni.

Nýjustu fréttir

ÍBV mætir Val í fyrsta leik úrslita
The Puffin Run hlaupið í níunda sinn á morgun
Sterkara íþróttasamfélag fyrir alla
Frábær endurkomusigur ÍBV gegn Víkingi
Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskis virði?
Krefjandi aðstæður við borun
Jóný bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2026
Guðný Geirsdóttir hjá ÍBV út 2027
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.