ÍBV stelpurnar með þriðja sigurinn í röð
Embla Harðardóttir lagði upp sigurmark ÍBV í dag. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV í fótbolta vann sinn þriðja sigur í röð þegar þær unnu Val á Hlíðarenda 2-3, í þriðju umferð Bestu deildar kvenna í dag. 

Eyjastelpur byrjuðu leikinn betur og komust í 0-1 eftir um það bil tíu mínútur. Valskonur tóku þá hornspyrnu sem Olga Sevcova las og hún brunaði upp völlinn og kom boltanum á Allison Patriciu Clark sem var ein gegn Tinnu Brá Magnúsdóttur, markverði Vals, og setti boltann örugglega framhjá henni. Fyrri hálfleikurinn var frekar bragðdaufur og lítið um færi. Valskonur sáu hins vegar til þess að allt væri jafnt í hálfleik því á 40. mínútu jafnaði Ágústa María Valtýsdóttir leikinn þegar hún skallaði boltann í netið af stuttu færi. Staðan 1-1 á hálfleik.

Valskonur byrjuðu síðari hálfleikinn af krafti og komust yfir á 48. mínútu. Arnfŕiður Auður Arnarsdóttir komst þá inn í misheppnaða sendingu Arden Joy La-Rose, markvarðar ÍBV, og keyrði inn á teiginn og kláraði í fjærhornið. Eyjakonur neituðu að játa sig sigraða og jöfnuðu leikinn tuttugu mínútum fyrir leikslok þegar Allison Grace Lowrey skoraði af stuttu færi. Staðan 2-2. Það var svo Viktoija Zaicikova sem skoraði sigurmark ÍBV þegar tólf mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Embla Harðardóttir átti þá frábæra sendingu inn fyrir vörn Vals á Viktoiju sem vippaði skemmtilega yfir markvörð Vals. Lokatölur leiksins 2-3.

Eyjakonur hafa byrjað tímabilið frábærlega og eru á toppnum með níu stig. Valskonur eru í sjöunda sæti með þrjú stig.

Næsti leikur ÍBV er gegn Þór/KA, sunnudaginn 10. maí kl 14:00 á Hásteinsvelli.

Valur 2 – 3 ÍBV

0-1 Allison Patricia Clark (‘9 )

1-1 Ágústa María Valtýsdóttir (’40 )

2-1 Arnfríður Auður Arnarsdóttir (’48 )

2-2 Allison Grace Lowrey (’71 )

2-3 Viktorija Zaicikova (’78 )

Nýjustu fréttir

ÍBV stelpurnar með þriðja sigurinn í röð
Milena í lokahóp u-16
Skýr framtíðarsýn í menningarmálum
Mukka með nýtt lag – „So Close“
Stórir fjárfestar og stéttarfélög bætast við hópinn á bak við Eyjagöng
Vigdís Sigurðar tók þátt í SuperHalf hlaupaseríunni  
Fyrsta ferð Herjólfs í Landeyjahöfn vorboði í snjókomunni
ÍBV sækir Val heim í dag
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.