Handbolta menn og konur gerðu sér glaðan dag í gærkvöldi þegar lokahóf hanknattleiksdeildar ÍBV fór fram á Háaloftinu. Ólafur Jóhann Borgþórsson fór með veislustjórn og matur kvöldsins var í höndum Einsa Kalda. Þá sá Ingó Veðurguð um að skemmta seinna um kvöldið.
Veitt voru verðlaun fyrir árangur vetrarins en það voru þau Andri Erlingsson og Sandra Erlingsdóttir sem voru valin bestu leikmenn meistaraflokkana. Alexandra Ósk Viktorsdóttir og Elís Þór Aðalsteinsson fengu fréttabikarana, sem efnilegustu leikmenn ÍBV. Birna Berg Haraldsdóttir og nökkvi Snær Óðinsson voru valin ÍBV-arar og Morgan Goði Garner og Ásdís Halla Hjarðar þóttu sýna mestu framfarir. Einnig voru veitt verðlaun 3. flokki karla og kvenna og venslaliði ÍBV, HBH.
Hér að neðan má sjá verðlaunahafa og myndir frá kvöldinu sem Óskar Pétur Friðriksson tók.
3. flokkur karla:
ÍBV-ari: Benóný Þór Benónýsson
Mestu framfarir: Kári Snær Hlynsson
Efnilegastur: Anton Frans Sigurðsson
Besti leikmaðurinn: Haukur Leó Magnússon

3. flokkur kvenna:
ÍBV-ari: Birna Dís Sigurðardóttir
Mestu framfarir: Lilja Kristín Svansdóttir
Efnilegust: Agnes Lilja Styrmisdóttir
Besti leikmaðurinn: Birna María Unnarsdóttir

Meistaraflokkur kvenna:
ÍBV-ari: Birna Berg Haraldsdóttir
Mestu Framfarir: Ásdís Halla Hjarðar
Efnilegust: Alexandra Ósk Viktorsdóttir
Besti leikmaðurinn: Sandra Erlingsdóttir

Meistaraflokkur karla:
ÍBV-ari: Nökkvi Snær Óðinsson
Mestu framfarir: Morgan Goði Garner
Efnilegastur: Elís Þór Aðalsteinsson
Besti leikmaðurinn: Andri Erlingsson

HBH:
Mjaldurinn: Hinrik Hugi Heiðarsson
Mestu framfarir: Einar Bent Bjarnason
Efnilegastur: Heimir Halldór Sigurjónsson
Bestur: Ívar Bessi Viðarsson
