Hlustaðu á þjóðhátíðarlagið 2026
Birgitta Haukdal og Herra Hnetusmjör frumfluttu þjóðhátíðarlagið 2026 nú í morgun.
Birgitta Haukdal og Herra Hnetusmjör sjá um þjóðhátíðarlagið í ár og var lagið frumflutt í beinni útsendingu í morgun á FM957.

Að þeirra sögn vildu þau fanga þá einstöku tilfinningu sem myndast þegar fólk er á leiðinni í dalinn á þjóðhátíð. Þau segjast strax hafa verið sammála um í hvaða átt þau vildu fara með lagið.

„Við vildum gera lag sem væri ekki eins og neitt annað,“ segja þau, en markmiðið hafi verið að skapa stemningu sem tengist bæði eftirvæntingu og þeirri sérstæðu upplifun sem fylgir þjóðhátíðinni í Eyjum.

Nýjustu fréttir

Lundaballið haldið í Höllinni – myndir
Gjaldskrá Frístundar til endurskoðunar
Vilja setja aldursmörk á samfélagsmiðla – ábyrgðin yrði hjá foreldrum
ÍBV tapaði gegn Breiðablik á Hásteinsvelli
Fjölbreytt tómstundastarf kynnt í Íþróttamiðstöðinni
94 bjargdúfur felldar – aðgerðum ekki lokið
Nýjungar og verðlaun á sjávarútvegssýningunni – myndir frá IceFish
Toppliðið heimsækir Hásteinsvöll
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.