Opinber færsla Lindu Rósar Sigurðardóttur á samfélagsmiðlum hefur vakið athygli þar sem hún lýsir reynslu sinni af störfum hjá Vestmannaeyjabæ og setur fram gagnrýni á starfsumhverfi og stjórnarhætti innan bæjarkerfisins.
Linda Rós starfaði um árabil hjá Vestmannaeyjabæ, fyrst í Íþróttamiðstöðinni og síðar á umhverfis- og framkvæmdasviði. Í pistli sínum lýsir hún breytingum sem hún segir hafa orðið á starfsumhverfinu á síðari árum og segir meðal annars að starfsfólk hafi upplifað að erfitt væri að tjá skoðanir sínar án afleiðinga.
Pistillinn hefur vakið talsverð viðbrögð og í umræðunni í kjölfarið hafa aðrir einstaklingar, þar á meðal fyrrverandi starfsmenn bæjarins, tekið undir gagnrýni á vinnulag og starfsumhverfi. Eyjafréttir hafa óskað eftir viðbrögðum frá Vestmannaeyjabæ vegna þeirra sjónarmiða og fullyrðinga sem fram hafa komið. Nanar verður fjallað um málið þegar svör berast.