„Tillaga Miðflokksins kom mér á óvart“
Trausti Hjaltason

Á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar vakti athygli þegar fulltrúar Miðflokksins lögðu til að Trausti Hjaltason yrði ráðinn bæjarstjóri. Tillagan náði ekki fram að ganga en Trausti segir hana hafa komið sér á óvart og þakkar það traust sem honum var sýnt.

Á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja á miðvikudag var Íris Róbertsdóttir ráðin bæjarstjóri til næstu fjögurra ára. Um skipunina urðu þó umræður þegar bæjarfulltrúar Miðflokksins lögðu fram tillögu um að Trausti Hjaltason tæki við embættinu.

Málið hefur vakið athygli utan Eyja og er meðal annars til umfjöllunar hjá Morgunblaðinu. Trausti, sem var fjarverandi á fundinum sjálfum, segist hafa verið hissa á tillögunni.

„Miðflokkurinn vildi fara aðra leið og ég hef skilning á því. Tillaga þeirra um að gera mig að bæjarstjóra kom mér á óvart, en ég þakka þeim traustið,“ segir Trausti í samtali við Eyjafréttir.

Hann segist jafnframt standa með þeirri ákvörðun sem meirihluti bæjarstjórnar tók. „Sjálfur hef ég alltaf staðið með Sjálfstæðisflokknum og stend með fulltrúum flokksins í bæjarstjórn.“

Trausti segir undanfarnar vikur hafa verið pólitískt krefjandi í Vestmannaeyjum, en að kjörnir fulltrúar beri mikla ábyrgð á þeim ákvörðunum sem teknar eru.

„Ég tel að Sjálfstæðisflokkurinn hafi tekið vel á móti fólki sem sneri aftur til flokksins eftir að H-listinn var lagður niður, þó jafnframt hafi verið miður að sjá gott fólk færa sig yfir í Miðflokkinn. Dyr flokksins standa þó ávallt opnar fyrir alla.“

Að lokum leggur hann áherslu á að horfa fram á veginn og vinna saman að hagsmunamálum bæjarins. „Framundan eru stór og mikilvæg verkefni fyrir sveitarfélagið. Ég hlakka til samstarfs við alla bæjarfulltrúa og er sannfærður um að við vinnum öll að því sama, að stuðla að sem bestum hag bæjarins.“

Nýjustu fréttir

Myndir: Karlakórinn söng sumarið inn í Eldheimum
„Tillaga Miðflokksins kom mér á óvart“
Sjómannskonur: Birna Karen
Aukið frelsi og sanngjarnt verð
Sjómannskonur: Guðbjörg Erla
Vel heppnuð fimleikasýning
Brot af því besta úr viðtölum Stjána á Emmunni
Dagur hlaut háttvísisverðlaun HDSÍ
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.