Blómaakkeri prýðir Stakkagerðistúnið fyrir sjómannadaginn
Kjartan Vidó og samstarfsfólk hans hafa sett upp glæsilegt blómaakkeri í Stakkagerðistúni í tilefni sjómannadagsins. Ljósmyndir: Eyjafréttir/ÓPF

Undirbúningur fyrir sjómannadaginn er kominn á fullt í Vestmannaeyjum. Starfsfólk umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar hefur undanfarna daga unnið að því að fegra Stakkagerðistúnið fyrir hátíðarhöld helgarinnar.

Kjartan Vidó og hans fólk hafa lagt lokahönd á ýmis verkefni á túninu og meðal annars útbúið glæsilegt blómaakkeri í blómareitnum bak við stóra steininn. Þar er sjómennskunni og sjómannadeginum gert hátt undir höfði með litríku og fallegu fyrirkomulagi sem vekur athygli gesta og gangandi.

Sjómannadagurinn hefur lengi skipað sérstakan sess í Vestmannaeyjum og er Stakkagerðistúnið jafnan miðpunktur fjölbreyttrar dagskrár þar sem bæjarbúar og gestir koma saman til að fagna deginum. Óskar Pétur Friðriksson smellti myndum á túninu í morgun. Á myndinni hér að ofan má sjá akkerið fyrir ofan starfsfólk bæjarins.

 

Nýjustu fréttir

Bærinn skýrir ástandið í Búastaðagryfju
Blómaakkeri prýðir Stakkagerðistúnið fyrir sjómannadaginn
Sjómannskonur: Harpa Hjartardóttir
Fækkun skemmtiferðaskipa fram undan
Myndir: Karlakórinn söng sumarið inn í Eldheimum
„Tillaga Miðflokksins kom mér á óvart“
Sjómannskonur: Birna Karen
Aukið frelsi og sanngjarnt verð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.