Halli Geir Evrópumeistari í sjómanni  
Það er aldrei of seint að byrja 
Halli Geir í úrslitarimmunni með vinstri hendi.

Í maí síðastliðnum náði Eyjamaðurinn Haraldur Geir Hlöðversson frábærum árangri á Evrópumeistaramótinu í sjómanni (armwrestling), sem haldið var í Búdapest í Ungverjalandi. Mótið er haldið árlega í einhverju Evrópulandi og var þetta í 35. sinn sem það fór fram. Keppendur voru rúmlega 1300 talsins og dreifðust þeir á fjölmörg hótel í nágrenni keppnishallarinnar MTK Sportpark. 

Við heyrðum í Halla Geir, eins og hann er jafnan kallaður, og sagði hann okkur frá mótinu og reynslu sinni. „Mótið hófst 11. maí og lauk 19. maí. Keppt var í öllum aldurs- og þyngdarflokkum karla og kvenna, allt frá 15 ára aldri og upp úr sjötugu. Sjálfur keppti ég í opnum flokki 70 ára og eldri,“ segir Halli Geir. „Einnig var keppt í flokki fólks með ýmiss konar fötlun, þar sem styrkur og tækni handanna ræður úrslitum. Mér finnst þetta sérstaklega áhugaverður möguleiki og tel að það væri upplagt fyrir íþróttafélög fatlaðra á Íslandi að kynna þessa íþrótt fyrir sínum iðkendum. Strangt lyfjaeftirlit fer fram á mótinu og þurfa verðlaunahafar að undirgangast lyfjapróf,“ segir Halli Geir. 

Evrópumeistari á vinstri og hægri hendi 

Halli Geir vann allar sínar viðureignir í flokki 70 ára og eldri og stóð að lokum uppi sem Evrópumeistari bæði á vinstri og hægri hendi. Hann segir þetta hafa verið stór og eftirminnileg tímamót. 

Það sem gerir reynsluna ef til vill enn sérstæðari er að hann kynntist þessari íþrótt ekki fyrr en hann var orðinn 55 ára gamall, á þeim aldri þegar margir eru farnir að hægja á sér eða hætta alfarið í íþróttum. Hann segist þó oft hafa óskað þess að hafa kynnst sjómanni mun fyrr á lífsleiðinni. 

Meiri stuðning við jaðaríþróttir 

Að mati Halla Geirs er framboð íþróttagreina fyrir börn og ungmenni á Íslandi allt of einsleitt og lítið gert til að kynna svokallaðar jaðaríþróttir. 

Hann bendir á að ÍSÍ skilgreini sjómann ekki sem íþrótt þar sem greinin sé hvorki viðurkennd af Alþjóðaólympíusambandinu né sé keppnisgrein á Ólympíuleikum. Í nágrannalöndum Íslands hafi þróunin hins vegar orðið önnur. 

„Í Noregi hefur keppni í sjómanni til dæmis fengið inni hjá norska lyftingasambandinu sem er aðili að norska íþróttasambandinu. Það hefur gert Norðmönnum kleift að taka þátt í Evrópu- og heimsmeistaramótum fyrir hönd þjóðar sinnar,“ segir hann. 

Til þess að Halli Geir gæti sjálfur keppt erlendis þurfti hann að stofna sérstakt samband, Icelandic Armwrestling Federation, sem starfar án tengsla við ÍSÍ og er rekið af honum sjálfum. 

„Baráttan um fjármagn innan íþróttahreyfingarinnar veldur einsleitninni og því að mörg börn finna ekki íþrótt við sitt hæfi. Sum hætta einfaldlega og flosna upp úr íþróttum á meðan önnur reyna að ná árangri í grein sem hentar þeim í raun illa. Þá má einnig benda á að mun líklegra er að finna einn framúrskarandi íþróttamann úr litlu úrtaki heldur en til dæmis ellefu framúrskarandi einstaklinga úr sama hópi,“ segir Halli Geir. 

Aldrei of seint að byrja 

Að lokum segir Halli Geir: „Ég vil þakka Hjöddu minni fyrir lipra fararstjórn og æfingafélaga mínum, Baltasar Þór Davíðssyni fyrir allar tækniæfingarnar og móralskan stuðning. 

Um leið vil ég sérstaklega hvetja fólk sem er komið á efri ár að gefast ekki upp á því að prófa eitthvað nýtt. Það er aldrei of seint að byrja í íþrótt eða hreyfingu sem vinnur með manni, styrkir huga og hönd og gefur nýjan kraft í lífið.“ 

Nýjustu fréttir

Kraftmikil önn og árangur nemenda í forgrunni
Halli Geir Evrópumeistari í sjómanni  
Sjórinn var aldrei í plönunum, segir Sigurhanna
Sjómannadags fjör í Höllinni: myndasyrpa
Myndir frá sjómannafjöri á bryggjunni
Skötuveisla sem stendur undir nafni
Íþróttafélagið Ægir fór í keppnisferð til Danmerkur
Bræðurnir Jón Atli og Árni rifja upp árin á Ísleifi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.