Heimaklettur í allri sinni dýrð – en gönguleiðin bíður enn úrbóta
Víða hefur rof sett mark sitt á gönguleiðina upp á Heimaklett. Á þessari mynd má sjá hvernig jarðvegur hefur skolast undan stígnum og grindur sem settar voru upp til að bæta aðgengi hanga að hluta til uppi. Skjáskot/YouTube.

Heimaklettur er eitt helsta kennileiti Vestmannaeyja og vinsæll áfangastaður jafnt heimamanna sem ferðafólks. Í nýju myndbandi Halldórs B. Halldórssonar fær kletturinn að njóta sín í allri sinni dýrð, en um leið vekur myndbandið athygli á ástandi gönguleiðarinnar upp á klettinn.

Árið 2024 fékk Vestmannaeyjabær rúmlega ellefu milljóna króna styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða til að ráðast í úrbætur á gönguleiðinni. Fram kom í umfjöllun Eyjafrétta síðla árs 2025 að framkvæmdir hefðu hafist með endurnýjun trappa og stiga, en tafir hefðu orðið á framhaldinu vegna þess að skipta þurfti um verktaka.

Sjá frétt frá 2024: Styrkja uppbyggingu gönguleiðar á Heimaklett

Myndefnið sem Halldór tók upp í dag bendir til þess að enn sé víða þörf á frekari úrbótum. Á köflum hefur jarðvegur skolast undan stígnum og sums staðar má sjá ummerki um slit á þeim mannvirkjum sem ætlað var að bæta aðgengi og öryggi göngufólks.

Framkvæmdir hófust í fyrra

Í svari Brynjars Ólafssonar, framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar, við fyrirspurn Eyjafrétta haustið 2025 kom fram að endurnýjun trappa og stiga hefði hafist um sumarið. Jafnframt sagði hann að tafir hefðu orðið á frekari framkvæmdum þar sem leita þurfti til nýrra aðila vegna verkefnisins.

Nú, tæpu ári síðar, virðist ljóst að verkefninu er ekki lokið og ástand gönguleiðarinnar vekur áfram athygli þeirra sem leið eiga um eitt vinsælasta útivistarsvæði Vestmannaeyja.

Play Video

Nýjustu fréttir

Þétt setinn skóli þegar haustönn hefst
Heimaklettur í allri sinni dýrð – en gönguleiðin bíður enn úrbóta
Fjögur lið frá ÍBV tóku þátt á Norðurálsmótinu
Stórleikur á Hásteinsvelli í kvöld
Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Bergmál á Þingvöllum sló í gegn
Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja
MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.