Litla-Hraun jafnað við jörðu
Eitt elsta íbúðarhús Vestmannaeyja hverfur úr bæjarmyndinni
Vinnuvélar hófu í dag niðurrif á Litla-Hrauni við Reglubraut. Húsið var reist árið 1911 og hafði um árabil verið í mjög slæmu ástandi. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Niðurrif er hafið á húsinu Litla-Hrauni við Reglubraut, sem er skráð að Vesturvegi 17b. Húsið hefur um árabil staðið autt og verið í afar slæmu ásigkomulagi.

Litla-Hraun var reist árið 1911 og telst því meðal eldri íbúðarhúsa í Vestmannaeyjum. Húsið var endurbætt árið 1960 og á sér langa sögu í bænum. Meðal annars var það nýtt við tökur á kvikmyndinni Djúpinu. Á vefnum Heimaslóð má finna upplýsingar um eigenda- og íbúasögu hússins.

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja samþykkti á síðasta ári að veita heimild til niðurrifs hússins að fenginni umsögn Minjastofnunar Íslands. Þar kom fram að húsið væri orðið nánast óviðgerðarhæft eftir margra ára vanhirðu og að ástand þess hefði lengi valdið áhyggjum. Jafnframt var harmað að ekki hefði tekist að varðveita húsið.

Ljósmyndararnir Óskar Pétur Friðriksson og Haraldur Halldórsson voru á vettvangi í dag og tóku meðfylgjandi myndir og myndbönd frá niðurrifinu. Þar má sjá vinnuvélar að störfum og hvernig Litla-Hraun hverfur smám saman úr bæjarmyndinni. Einnig má sjá hér að neðan nokkrar myndir Óskars Péturs frá árinu 2010 þegar verið var að taka upp myndina Djúpið við húsið.

Nýjustu fréttir

ÍBV sigraði hollensku meistarana í æfingaleik
„Eins og eitthvað væri að pikka í mig…“
Sandra Dís – Stemningshlaupari sem vill ná árangri
Golfvöllurinn í Eyjum á meðal þeirra bestu í heimi
Framkvæmdir setja svip sinn á bæinn
Sterkar rætur í Eyjum endurspeglast í listinni
SFS vara við erlendum yfirráðum yfir aflaheimildum við inngöngu í ESB
Strandveiðar 2026
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.