Niðurrif er hafið á húsinu Litla-Hrauni við Reglubraut, sem er skráð að Vesturvegi 17b. Húsið hefur um árabil staðið autt og verið í afar slæmu ásigkomulagi.
Litla-Hraun var reist árið 1911 og telst því meðal eldri íbúðarhúsa í Vestmannaeyjum. Húsið var endurbætt árið 1960 og á sér langa sögu í bænum. Meðal annars var það nýtt við tökur á kvikmyndinni Djúpinu. Á vefnum Heimaslóð má finna upplýsingar um eigenda- og íbúasögu hússins.
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja samþykkti á síðasta ári að veita heimild til niðurrifs hússins að fenginni umsögn Minjastofnunar Íslands. Þar kom fram að húsið væri orðið nánast óviðgerðarhæft eftir margra ára vanhirðu og að ástand þess hefði lengi valdið áhyggjum. Jafnframt var harmað að ekki hefði tekist að varðveita húsið.
Ljósmyndararnir Óskar Pétur Friðriksson og Haraldur Halldórsson voru á vettvangi í dag og tóku meðfylgjandi myndir og myndbönd frá niðurrifinu. Þar má sjá vinnuvélar að störfum og hvernig Litla-Hraun hverfur smám saman úr bæjarmyndinni. Einnig má sjá hér að neðan nokkrar myndir Óskars Péturs frá árinu 2010 þegar verið var að taka upp myndina Djúpið við húsið.