Nýtt tölublað Eyjafrétta er komið út. Blaðið markar tímamót, því það er í fyrsta sinn sem reglulegt tölublað kemur eingöngu út á vefnum. Frá og með þessu verður megináherslan á rafræna útgáfu, samhliða því sem Eyjafréttir hyggjast gefa út þrjú til fjögur vegleg prentblöð á ári.
Á forsíðu blaðsins eru Orkumótsmeistarar FH árið 2026, en mótið og sú mikla stemning sem fylgdi því fær veglegt pláss í blaðinu. Einnig er að finna ítarlega myndasyrpu frá mótinu.
Meðal stærri umfjallana er viðtal við Írisi Róbertsdóttur bæjarstjóra og Eyþór Harðarson, formann bæjarráðs, þar sem þau fara yfir helstu verkefni nýrrar bæjarstjórnar. Þar er meðal annars rætt um samgöngur, vatnsmál, Landeyjahöfn og mikilvægi þess að bæjarstjórnin tali einum rómi í stærstu hagsmunamálum Vestmannaeyja.
Í blaðinu er einnig ítarleg umfjöllun um framandi sjávartegundir í Vestmannaeyjahöfn. Rætt er við Sindra Gíslason, forstöðumann Náttúrustofu Suðvesturlands, sem segir höfnina orðna einn mikilvægasta vöktunarstað landsins þegar kemur að framandi sjávarlífverum. Einnig er kíkt í heimsókn á tvö ný heimili í bænum. Hús sem voru í byggingu síðast þegar Eyjafréttir litu þar við.
Landhelgisgæslan á einnig stóran sess í blaðinu. Á blaðsíðu 9 er fjallað um 100 ára sögu Landhelgisgæslunnar og á næstu síðu er söguleg umfjöllun um Vestmannaeyja-Þór, fyrsta varðskip Gæslunnar. Þar er rifjuð upp saga skipsins, sem markaði upphaf eigin skipareksturs Landhelgisgæslunnar og skipaði mikilvægan sess í öryggis- og gæslusögu þjóðarinnar.
Þá er Goslokahátíð gerð góð skil með viðtölum, dagskrá og kynningu á þeim fjölmörgu viðburðum sem fram undan eru. Lesendur fá meðal annars að kynnast tónlistarfólkinu sem stígur á svið um helgina, þar á meðal Guðrúnu Erlingsdóttur sem heldur útgáfutónleika í Eldheimum og Birtu Dís sem kemur fram á Vigtartorgi.
Að venju er fjölbreytt efni í blaðinu, meðal annars pistlar, viðtöl, mannlíf, íþróttir og myndir úr samfélaginu. Meðal annars er Halldór Hjörleifsson Eyjamaður vikunnar þar sem hann ræðir uppbyggingu húsasmíðanáms í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum.
Nýja tölublaðið er aðgengilegt öllum áskrifendum á vef Eyjafrétta. Þeir sem vilja gerast áskrifendur geta skráð sig hér. Þeir áskrifendur sem eiga enn eftir að virkja rafræna áskrift geta haft samband hér.