Ísfisktogarinn Vestmannaey VE er kominn í þriggja vikna frí. Dyttað verður að skipinu í fríinu og áhöfnin mun njóta góðra daga. Heimasíða Síldarvinnslunnar segir frá. Fram kemur að slegið hafi verið á þráðinn til Birgis Þórs Sverrissonar skipstjóra og var hann fyrst spurður um síðustu veiðiferðir skipsins.
„Við lönduðum fullfermi í Vestmannaeyjum 23. júní og aftur í Þorlákshöfn þann 27. júní. Síðan var landað 65 tonnum í Eyjum í gær að afloknum stuttum túr. Aflinn í þessum veiðiferðum hefur verið blandaður; þorskur, ýsa, ufsi, koli og fleira. Í öllum þessum túrum höfum við verið að veiðum á Pétursey, Vík og Ingólfshöfða með viðkomu á Broadway í upphafi síðasta túrs. Þetta hefur gengið vel hjá okkur en það er alls ekki sama fiskmagn á ferðinni nú og á sama tíma í fyrra og veður hefur verið frekar haustlegt stundum.
Ég hef trú á því að fiskmagnið aukist fljótlega en það er háð því æti sem er til staðar. Nú í síðasta túr var óhemju mikið af sandsíli við Ingólfshöfða og ég hef í reyndinni aldrei séð svona mikið af síli. Þegar sílið er komið þá kemur fiskurinn í kjölfarið, það er engin spurning. Svo kemur síldin í framhaldinu og það hefur auðvitað mikil áhrif líka. Það er sem sagt bara bjart fram undan hvað veiði varðar. Nú erum við komnir í þriggja vikna stopp og auðvitað munu menn njóta þess í botn og mæta á ný kátir og hressir að fríi loknu.” sagði Birgir Þór.