Öll börn eiga að sitja við sama borð
Börnin í Vinnuskóla Vestmannaeyja í pásu. Skjáskot/youtube.

Aðsend grein

Kjartan Vídó, Guðríður Jónsdóttir og Þóra Guðný Arnarsdóttir

Það á ekki að skipta máli hvort barn eigi afmæli í maí eða september þegar kemur að því að fá fyrstu kynni af atvinnulífinu.

Í Vestmannaeyjum hefur vinnuSKÓLINN um áratugaskeið verið mikilvægur þáttur í uppeldi og samfélagsþátttöku ungmenna. Þar læra börn ábyrgð, stundvísi, samvinnu og virðingu fyrir vinnu. Fyrir mörg er þetta fyrsta reynslan af því að mæta til starfa, axla ábyrgð og fá laun fyrir vel unnið verk. Þetta eru verðmæti sem erfitt er að meta til fjár.

Þess vegna er það bæði sorglegt og óásættanlegt að gildandi túlkun laga um vinnu barna leiði nú til þess að meirihluti þeirra barna sem lokið hafa 7. bekk fái ekki að taka þátt í Vinnuskóla Vestmannaeyjabæjar í sumar.

Fyrir sumarið sóttu 56 börn um starf í vinnuskólanum. Af þeim verða 34 útilokuð frá þátttöku þegar vinnuskólinn hefst vegna þess eins að þau hafa ekki enn náð 13 ára aldri. Fjölskyldu- og tómstundaráð samþykkti að þau börn sem verða 13 ára á starfstímanum geti hafið störf um leið og þau ná þeim aldri. Þrátt fyrir það standa eftir 25 börn sem ekki ná 13 ára aldri áður en vinnuskólanum lýkur og geta því ekki tekið þátt.

Þetta þýðir að börn sem hafa setið saman í sama bekk allt skólaárið, eru jafngömul að öllu leyti nema nokkrum mánuðum og hafa sömu forsendur til að sinna léttum og öruggum verkefnum, njóta ekki sömu réttinda. Sum fá að taka þátt í vinnuskólanum en önnur sitja eftir.

Það er erfitt að útskýra fyrir tólf ára barni hvers vegna vinir þess mæta saman til vinnu á hverjum morgni á meðan það sjálft fær ekki að vera með vegna fæðingardags síns. Það skapar vonbrigði, útilokun og ósanngjarna stöðu sem á sér enga málefnalega stoð þegar um er að ræða störf sem sveitarfélög skipuleggja af mikilli ábyrgð og undir öruggri handleiðslu starfsfólks. Er eðlilegt að tvö börn sem sátu hlið við hlið í 7. bekk á föstudegi fái gjörólík tækifæri á mánudegi eingöngu vegna þess að annað á afmæli í maí en hitt í september?

Markmið laganna um vernd barna á vinnumarkaði eru mikilvæg og óumdeild. Börn eiga ekki að vinna hættuleg eða óviðeigandi störf. En vinnuskólar sveitarfélaga eru einmitt hannaðir með það að leiðarljósi að verkefnin séu létt, örugg og hæfi aldri barnanna. Það er því þversagnakennt að sama regluverk og ætlað er að vernda börn komi í veg fyrir þátttöku þeirra í einu öruggasta starfsumhverfi sem þeim stendur til boða.

Við teljum því tímabært að endurskoða lögin þannig að sveitarfélögum verði heimilt að bjóða öllum börnum sem lokið hafa 7. bekk þátttöku í vinnuskóla, óháð því hvenær á árinu þau eiga afmæli. Slík breyting myndi tryggja jafnræði innan sama árgangs án þess að slakað væri á kröfum um öryggi eða aðbúnað.

Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyjabæjar hefur því skorað á stjórnvöld og Alþingi að bregðast tafarlaust við. Jafnframt hefur ráðið óskað eftir því við bæjarstjóra að fylgja málinu eftir gagnvart ráðherra, ráðuneyti, þingmönnum og Umboðsmanni barna.

Þetta er ekki aðeins lagatæknilegt álitaefni. Þetta snýst um réttlæti, jafnræði og tækifæri barna.

Það er einfaldlega óverjandi að börn í sama bekk sitji ekki við sama borð þegar kemur að þátttöku í vinnuskóla sveitarfélagsins. Lögin eiga að styðja við börn og sveitarfélög, ekki skapa ósanngjarnar hindranir sem útiloka stóran hluta árgangs frá fyrstu reynslu sinni af atvinnulífinu.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Fjölskyldu- og tómstundaráði.
Kjartan Vídó
Guðríður Jónsdóttir
Þóra Guðný Arnarsdóttir

Nýjustu fréttir

Ein fremsta hlaupakona heims hljóp The Puffin Run leiðina
Öll börn eiga að sitja við sama borð
Hrafnhildur – Blendnar tilfinningar að kveðja FÍV
Sólmyrkvinn sést vel í Vestmannaeyjum 12. ágúst
Andri Erlingsson markahæstur í fyrsta leik á EM u-20
Alexander Örn – Litlu atriðin skipta mestu máli
Sigurður Andrason – Stóð upp úr að vera valinn í Landsliðið
Tóku flugið í Eldheimum og hrifu tónleikagesti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.