Rannsóknum fyrir Eyjagöng miðar vel áfram
Kjarnaborunin á Landeyjasandi hefur nú náð 108,5 metra dýpi. Stefnt er að því að bora niður á um 300 metra áður en rannsókninni lýkur. Ljósmynd/Eyjagöng.

Kjarnaborunin á Landeyjasandi vegna fyrirhugaðra Eyjaganga heldur áfram af fullum krafti. Um helgina hafði borinn náð 108,5 metra dýpi og jafnframt standa yfir hafbotnsmælingar í Eyjasundi sem eiga að varpa frekara ljósi á jarðfræðilegar aðstæður á fyrirhugaðri jarðgangaleið.

Samkvæmt upplýsingum á vef Eyjaganga hafði borinn náð 108,5 metra dýpi í gær, laugardaginn 11. júlí. Þá voru liðnir 22 dagar frá því fyrstu bergkjarnarnir komu upp á yfirborðið á Landeyjasandi. Markmið borunarinnar er að afla nákvæmra upplýsinga um jarðlög og berggæði á svæðinu, en þær upplýsingar eru grundvallarforsenda fyrir hönnun og framkvæmd fyrirhugaðra jarðganga milli lands og Eyja.

Fram kemur að gangur verksins á Landeyjasandi sé um margt sambærilegur þeirri kjarnaborun sem áður var framkvæmd í Vestmannaeyjum. Stefnt er að því að bora niður á allt að 300 metra dýpi áður en rannsókninni lýkur.

Samhliða kjarnaboruninni eru hafnar hafbotnsmælingar í Eyjasundi. Fyrstu mælingarnar fóru fram sunnudaginn 5. júlí og er talið að þær hafi náð um 300 metra niður undir sjávarbotn. Fram undan er umfangsmikil úrvinnsla gagnanna.

Veður og sumarleyfi hjá starfsmönnum Landhelgisgæslunnar hafa valdið nokkrum töfum á mælingunum, en samkvæmt því er segir í upplýsingum á vef Eyjaganga eru horfur góðar á að hægt verði að halda þeim áfram næstu daga, enda skiptir ölduhæð miklu máli fyrir gæði gagnasöfnunarinnar.

Nýjustu fréttir

Sóley og Örlygur Helgi eru klúbbmeistarar GV 2026
Rannsóknum fyrir Eyjagöng miðar vel áfram
Þóra Guðný og Sveinn flutt í nýja húsið
ÍBV mætir KR á Meistaravöllum í kvöld
Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað
Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.