Eyjamennirnir, Andri Erlingsson og Elís Þór Aðalsteinsson, eru komnir áfram í milliriðil á Evrópumótinu í Rúmeníu, með u-20 ára landsliði Íslands í handbolta. Liðið tryggði sér 2. sæti í sínum riðli eftir tveggja marka sigur á Lettlandi í dag, í lokaleik riðilsins. Fyrir höfðu íslensku strákarnir sigrað Austurríki og tapað gegn Spáni.
Lettar voru með yfirhöndina í upphafi leiks en íslensku strákunum tókst að vera með tveggja marka forystu í hálfleik, 16-14. Síðari hálfleikur var frekar jafn en Lettar voru með eins marks forystu þegar tíu mínútur voru eftir. Íslenska liðið reyndist sterkari á lokamínútum leiksins og vann að lokum tveggja marka sigur, 31-29.
Andri og Elís Þór skoruðu samtals tólf mörk fyrir Ísland í leiknum. Andri var markahæstur, ásamt Harra Halldórssyni, með sjö mörk og Elís Þór skoraði fimm mörk.
Leikir Íslands í milliriðli:
Mánudagur 13. júlí kl. 14:00
Ísland – Króatía
Þriðjudagur 14. júlí kl. 14:00
Ísland – Danmörk