Frá Portúgal til Vestmannaeyja
Bandarískur varnarmaður til liðs við ÍBV
Jessica Hinton er komin til Eyja og hefur þegar hafið æfingar með ÍBV. Hér er hún á Hásteinsvelli. Ljósmynd/ÍBV

Knattspyrnudeild ÍBV hefur samið við bandaríska varnarmanninn Jessicu Hinton. Hún er 24 ára og kemur til Eyja frá SF Damaiense, sem leikur í efstu deild Portúgals.

Hinton segist lengi hafa stefnt að því að leika fyrir félag á borð við ÍBV og vera þakklát fyrir tækifærið.

„Að spila fyrir félag eins og ÍBV hefur lengi verið markmið hjá mér og ég er ótrúlega þakklát fyrir tækifærið, ekki bara til að spila fyrir félagið heldur einnig til að verða hluti af samfélaginu hér í Vestmannaeyjum,“ segir Hinton í tilkynningu knattspyrnudeildarinnar.

Sterkur ferill í bandaríska háskólaboltanum

Hinton lék þrjú tímabil með Brown University í bandaríska háskólaboltanum og hlaut þar meðal annars tvisvar sinnum All-Conference- og All-New England-viðurkenningar. Hún gegndi lykilhlutverki í einni sterkustu varnarlínu landsins en liðið fékk að meðaltali aðeins á sig 0,8 mörk í leik.

Árið 2024 lék hún með Vanderbilt University og var í byrjunarliði í öllum leikjum tímabilsins. Liðið fékk aðeins á sig 19 mörk og Hinton átti meðal annars stoðsendinguna sem tryggði Vanderbilt sæti meðal 16 bestu liða í bandaríska háskólaboltanum, í fyrsta sinn í sögu skólans.

Jessica Hinton er þegar mætt til Eyja og hefur hafið æfingar með ÍBV.

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyjabær áfrýjar sýknudómi vegna vatnslagnarinnar
Frá Portúgal til Vestmannaeyja
„Við erum orðin skuldlaus“
Vinnslustöðin styrkir stöðu sína í Portúgal
Herjólfur aftur í fulla áætlun á morgun
Góð spá og lokaspretturinn hafinn fyrir Þjóðhátíð
Hafbotnsmælingum lokið – Komnir niður á 136 metra í Landeyjasandi
Flugmenn sviptir flugleyfi vegna lágflugs yfir Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.