Nýtt bakarí opnaði í morgun við Faxastíg 36. Vörubakarí er í eigu fjölskyldunnar á Vöruhúsinu og leggja þau áherslu á ferskt bakkelsi, notalegt andrúmsloft og gott kaffi. Eyjafréttir voru á staðnum á fyrsta opnunardegi til að mynda stemninguna og var strax nóg að gera.
Eigendurnir tóku spenntir á móti fyrstu gestunum og buðu þeim upp á fjölbreytt úrval af bakkelsi og öðrum kræsingum.
Hugmyndin að bakaríinu kviknaði þegar fjölskyldunni bauðst húsnæðið við Faxastíg. Upphaflega stóð til greina að nýta það til að stækka framleiðslu Vöruhússins, en eftir því sem verkefnið þróaðist varð ljóst að rétti kosturinn væri að opna bakarí.

Anton Örn frá Vöruhúsinu veitti Eyjafréttum viðtal.
„Okkur bauðst húsnæði á sínum tíma og við vorum ekkert viss strax hvort við ætluðum að opna bakarí. Við vorum jafnvel að spá í að nota það til að stækka framleiðsluna á Vöruhúsinu. Svo þróuðust hlutirnir og við tókum ákvörðun um að opna bakarí,“ segja eigendurnir.
Baksturinn er í höndum Viktors Ingasonar bakarameistara.
„Viktor verður potturinn og pannan í bakstrinum,“ segir Anton og bætir við að bakaríið verið hið klassíska bakarí með nútímalegu ívafi.
Undirbúningurinn hefur tekið nokkurn tíma enda þurfti að ráðast í töluverðar framkvæmdir.
„Við erum búin að taka allt í gegn hérna í bakaríinu, meðal annars rafmagn, pípulagnir og fleira. Þetta tók aðeins lengri tíma en við gerðum ráð fyrir. Á sama tíma höfum við verið að reka veitingastaðinn okkar, þannig að það hefur verið nóg að gera.“
Í bakaríinu er einnig notalegar salur þar sem gestir geta sest niður með kaffibolla og nýbakað bakkelsi.
„Við er með bæði uppáhelt kaffi og Nespresso ásamt allskonar huggulegheitum.“
Opið verður frá klukkan 07:30 til 16:30 til að byrja með og metið hvernig allt muni þróast.
Vörubakarí opnaði formlega í dag og bætist þar með í ört vaxandi flóru veitinga- og þjónustufyrirtækja í Vestmannaeyjum.
Eyjafréttir óskar eigendum Vörubakarís innilega til hamingju