Leikskrá knattspyrnudeildar ÍBV fyrir árið 2026 er komin út. Í blaðinu má meðal annars sjá viðtöl við fyrirliðann Alex Frey Hilmarsson, Eddu Dögg Sindradóttur leikmann kvennaliðsins, Jón Ólaf Daníelsson, þjálfara kvennaliðsins og Örn Hilmarsson, stjórnarmann í knattspyrnudeild.
Ritstjóri blaðsins er Örn Hilmisson.
Knattspyrnudeild ÍBV þakkar öllum styrktaraðilum og stuðningsmönnum fyrir stuðninginn innan sem utan vallar.
Hægt að sjá leikskrána fyrir árið 2026 með því að smella hér.