Kvennaliði ÍBV mistókst að tryggja sér sæti í bikarúrslitum Mjólkurbikars kvenna, eftir 1-0 tap í undanúrslitum gegn Þrótti Reykjavík, á Avis vellinum í Laugardalnum í kvöld.
Lítið var um opin færi í fyrri hálfleik en Þróttur var þó aðeins sterkara liðið. Allison Grace Lowrey fékk besta færi ÍBV í upphafi leiks en skot hennar fór framhjá markinu. Katie Cousins var nálægt því að koma Þrótti yfir þegar um tíu mínútur voru í hálfleiks flautið en markvörður ÍBV, Arden Joy La-Rose, varði frábærlega frá henni. Staðan 0-0 í hálfleik.
Eyjakonur byrjuðu síðari hálfleikinn af krafti og komu sér í nokkrar álitlegar stöður en náðu samt sem áður ekki að skapa sér nein dauðafæri.
Á 80. mínútu leiksins dró til tíðinda þegar varamaðurinn Bríet Fjóla Bjarnadóttir, leikmaður Þróttar, átti skot rétt fyrir utan vítateig sem Arden í marki ÍBV varði í þverslánna og út í teiginn. Eyjakonur náðu ekki að hreinsa frá marki og boltinn í Þórdísi Nönnu Ágústsdóttur og í markið. Reyndist þetta vera sigurmark leiksins og Þróttur Reykjavík er á leiðinni á Laugardalsvöll í bikarúrslit.
Þróttur mætir annað hvort, Fram eða Grindavík/Njarðvík í úrslitaleiknum, en sá leikur fer fram á morgun, laugardag, kl. 17:00 á Lambhagavellinum.