ÍBV og Grindavík/Njarðvík mættust í 15. umferð Bestu deildar kvenna á JBÓ vellinum í kvöld. Leiknum lauk með 4-2 sigri heimakvenna.
ÍBV byrjaði leikinn vel og náði forystu snemma leiks með frábæru marki frá Allison Patriciu Clark. Guðný Geirsdóttir átti þá langa sendingu fram úr markinu og Allison setti boltann skemmtilega yfir Evu Ýr Helgadóttur, markvörð Grindavík/Njarðvík.
Eftir mark ÍBV tóku heimakonur yfir leikinn og svöruðu með fjórum mörkum. Emma Nicole Phillips jafnaði leikinn á 16. mínútu þegar hún skoraði með föstu skoti frá vítateigslínunni. Hún kom Grindavík/Njarðvík yfir fimm mínútum síðar og fullkomnaði þrennuna á 29. mínútu leiksins þegar hún skoraði af stuttu færi á fjærstönginni. Emma var hvergi nærri hætt og setti fjórða markið fyrir heimakonur með góðum skalla eftir fyrirgjöf stuttu síðar.
Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari ÍBV, var geinilega ekki sáttur með sitt lið og gerði fjórfalda breytingu fimm mínútum fyrir hálfleiksflautið.
Eyjakonur byrjuðu síðari hálfleikinn af krafti. Þær minnkuðu muninn í 4-2 þegar Ágústa María Valtýsdóttir fékk sendingu inn á teiginn frá Olgu Sevcovu og kláraði hún færið af mikilli yfirvegun. Nær komust Eyjakonur ekki og niðurstaðan því 4-2 tap á útivelli.
ÍBV er í fjórða sæti deildarinnar með 21 stig. Grindavík/Njarðvík er sæti neðar með 16 stig.
Grindavík/Njarðvík 4 – 2 ÍBV
0-1 Allison Patricia Clark (‘8 )
1-1 Emma Nicole Phillips (’16 )
2-1 Emma Nicole Phillips (’21 )
3-1 Emma Nicole Phillips (’29 )
4-1 Emma Nicole Phillips (’37 )
4-2 Ágústa María Valtýsdóttir (’54 )