Dumbungur var yfir Vestmannaeyjum klukkan 17.50 í dag þegar sólmyrkvinn náði hámarki. Skýin höfðu þar betur í baráttunni við sólina og ekkert sást til hennar þegar hæst stóð.
Þrátt fyrir það fór myrkvinn ekki alveg fram hjá Eyjamönnum. Greinilega dró úr dagsbirtunni þegar tunglið huldi 99,6 prósent sólarskífunnar. Um stund var eins og húmaði að kveldi þótt enn væri síðdegi.
Vonir höfðu staðið til þess að glenna gæti myndast yfir Eyjum þegar nær drægi hámarki myrkvans, en þær vonir rættust ekki. Áhugafólk um stjörnufræði var þó tilbúið við Breiðabakka með búnað ef sólin léti sjá sig.
Veðrið hafði því síðasta orðið að þessu sinni. Þótt sjálf sólin væri falin á bak við skýin mátti engu að síður finna fyrir þessum sjaldgæfa viðburði þegar skyndilega dimmdi yfir bænum – rétt eins og kvöldið væri komið nokkrum klukkustundum of snemma.
Myrkvinn sást hins vegar vel annars staðar á landinu. Með fréttinni fylgja myndir frá Óskari Pétri, sem var á Grundarfirði þegar myrkvinn gekk yfir, auk myndbands sem Malín Erla Brynjólfsdóttir tók (hægt er að stækka það með því að smella á takkann lengst til hægri undir myndbandinu). Einnig eru nokkrar myndir teknar suður á eyju þar sem þó nokkrir fylgdust með. Þá má sjá mynd af myrkvanum við Bolafjall, tekin af sjónvarpsskjá RÚV, þar sem aðstæður til að fylgjast með þessum einstaka viðburði voru öllu betri en í Eyjum.




