Margrét Magnúsdóttir, landsliðsþjálfari u-17 kvenna, hefur valið Milenu Mihaelu Patru, leikmann ÍBV í fótbolta, í lokahóp íslenska liðsins sem tekur þátt í æfingamóti í Portúgal dagana 8.–14. september.
Ísland mætir þar Wales 8. september, Portúgal 11. september og Danmörku 14. september.
Milena er enn á þriðja flokks aldri en hefur nú þegar öðlast reynslu með meistaraflokki ÍBV. Hún lék tíu leiki með liðinu í Lengjudeildinni á síðasta tímabili og skoraði í þeim sex mörk. Þá hefur hún leikið átta leiki í Bestu deildinni í sumar og skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild í 1-2 tapi liðsins í síðustu umferð, gegn Þrótti Reykjavík.
Hópinn má sjá hér að neðan:
Ragna Lára Ragnarsdóttir – Afturelding
Katla Ragnheiður Jónsdóttir – Afturelding
Ólöf Margrét Marvinsdóttir – Breiðablik
Viktoría Emma Arnórsdóttir – Breiðablik
Lísa Steinþórsdóttir – Breiðablik
Særún L. Castaneda Bjarnadóttir – Breiðablik
Bára Björk Jóelsdóttir – Breiðablik
Freyja Rún Pálmadóttir – FH
Þórdís Lilja Jónsdóttir – FH
Milena Mihaela Patru – ÍBV
Eva Dís Sighvatsdóttir – Keflavík
Kara Guðmundsdóttir – KR
Hildur Eva Bragadóttir – Selfoss
Sara Rún Auðunsdóttir – Selfoss
Ásdís Erla Helgadóttir – Selfoss
Rósa María Sigurðardóttir – Stjarnan
Tinna María Heiðdísardóttir – Stjarnan
Agnes Klara Bernharðsdóttir – Stjarnan
Hafdís Nína Elmarsdóttir – Þór/KA
Auður Ósk Kristjánsdóttir – Völsungur