Evrópuhreyfingin segist virða niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið, þótt niðurstaðan valdi vonbrigðum. Alls studdu 47,2% kjósenda áframhaldandi aðildarviðræður en 52,8% voru þeim andvíg.
„Evrópuhreyfingin virðir lýðræðislega niðurstöðu þjóðarinnar, þótt við séum vonsvikin,“ segir í tilkynningu samtakanna.
Evrópuhreyfingin telur áfram mikilvægt að Ísland taki virkan þátt í evrópsku samstarfi. Þótt landið verði áfram utan ESB sé það nátengt Evrópu í gegnum EES, Schengen, NATO og fjölmörg önnur mikilvæg samstarfsverkefni. „Áhrif Evrópu á Ísland hverfa ekki,“ segir í tilkynningunni.
Þar segir jafnframt að nærri helmingur þjóðarinnar hafi kosið að halda áfram á evrópskri vegferð sem að mati hreyfingarinnar hefði þýtt stöðugra efnahagsumhverfi, aukin áhrif og sterkari stöðu Íslands meðal annarra lýðræðisríkja.
„Það skiptir miklu máli að sýna þeim 105.339 Íslendingum sem studdu áframhaldandi viðræður skilning og sjónarmiðum þeirra virðingu.“
Evrópuhreyfingin þakkar öllum þeim sem lögðu hönd á plóg í kosningabaráttunni undanfarna mánuði. Grasrótarstarfið hafi sýnt að Evrópuhugsjónin á Íslandi sé sterk og lifandi.
„Nú hefst nýr kafli. Evrópuhreyfingin mun áfram vinna að auknum tengslum Íslands við Evrópu, verja evrópska samvinnu og lýðræðisleg gildi og taka þátt í málefnalegri umræðu um framtíð Íslands og Evrópu,“ segir að lokum í tilkynningunni.