Eyjakonan Sara Dröfn Richardsdóttir er gengin aftur til liðs við ÍBV í handbolta og hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Handknattleiksdeild ÍBV greindi frá á samfélagsmiðlum sínum.
Sara Dröfn leikur í hægra horni og er uppalin hjá ÍBV. Hún hóf ung að leika með meistaraflokki félagsins og varð bæði deildar- og bikarmeistari með liðinu árið 2023. Hún hefur einnig leikið með öllum yngri landsliðum Íslands.
Sara Dröfn hefur undanfarin ár leikið með Selfossi en snýr nú til baka í uppeldisfélagið.
„Við bjóðum Söru Dröfn velkomna heim til Eyja og hlökkum til samstarfsins,“ segir í tilkynningu ÍBV.