Fræðsla um átraskanir í Landakirkju
Elín Vigdís Guðmundsdóttir, formaður Sáttar. Mynd: aðsend.

Elín Vigdís Guðmundsdóttir, formaður Sáttar, hagsmunasamtaka um átraskanir, verður með fræðslufund í Landakirkju á morgun, þriðjudaginn 1. september frá klukkan 15:00–17:00.

Markmið heimsóknarinnar er að miðla fræðslu um átraskanir og gefa fólki kost á samtali. Átraskanir geta verið lengi til staðar án þess að sjást utan á fólki og haft víðtæk áhrif á bæði líkamlega og andlega heilsu.

Elín hefur meðal annars bent á að skömm verði oft til þess að fólk glími eitt við vandann og leiti sér ekki aðstoðar. Átröskun geti í upphafi orðið eins konar bjargráð við erfiðum tilfinningum eða áföllum en með tímanum þróast yfir í alvarlegan heilsuvanda.

Fræðslufundurinn í Landakirkju er opinn þeim sem vilja kynna sér málefnið betur eða telja sig geta haft gagn af fræðslu og samtali.

Nýjustu fréttir

Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?
Völundarhús og sögustund í myrkri á Bókasafninu
Fimmti sigur ÍBV í röð kom gegn Gróttu
250 rúmmetra tankur kominn á sinn stað
SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
Að kveikja neistann – að vekja áhuga og ástríðu barna í námi og skólastarfi  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.