Ný bók frá Ásmundi Friðrikssyni 
Sögur af Vellinum 
Ási Friðriks.

Ný bók eftir Ásmund Friðriksson kom út í byrjun september, samhliða Ljósanótt í Reykjanesbæ. Þá eru liðin 20 ár frá því að herinn yfirgaf Miðnesheiði og jafnframt 20 ár frá því að Ási tók við stjórn Ljósanætur og efldi hátíðina í samstarfi við gott fólk. Í tilefni þessara tímamóta gefur hann út bókina Sögur af Vellinum sem hefur að geyma, eins og nafnið gefur til kynna, sögur af íslenskum starfsmönnum hjá hernum á Keflavíkurflugvelli. Ásmundur segir í samtali við Eyjafréttir að hann stefni á að kynna bókina í Eyjum fljótlega í haust. 

Í bókinni eru viðtöl við 20 einstaklinga, auk frásagna fjölda annarra sem ekki koma fram undir nafni. Þar er meðal annars sagt frá ánægjulegu samstarfi við bandaríska hermenn og þeim nýju siðum og tækifærum sem fylgdu komu hersins og innreið „Litlu Ameríku“ í íslenskt samfélag. Margar sagnanna eru með ólíkindum og segir höfundur að hann hafi oft átt erfitt með að halda aftur af hlátrinum við skrifin. 

Með tilkomu hersins breyttist neyslumynstur Íslendinga verulega og nýjar vörur á borð við hamborgara, franskar kartöflur og kók í dós voru algjör nýlunda. Þá var töluvert um að starfsmenn á Vellinum smygluðu áfengi og nýtískufatnaði sem var Íslendingum framandi. Margar kostulegar sögur eru sagðar af samskiptum starfsmanna og lögreglunnar í hliðinu. Bókin er full af skemmtilegum frásögnum sem mikilvægt er að varðveita. 

Bókin fjallar á raunsæjan hátt um lífið á Vellinum og þau áhrif sem herinn hafði á samfélagið á Suðurnesjum. Sögur af Vellinum er bráðskemmtileg bók og ein saga úr henni fylgir hér með. 

 “Í kagganum mínum var mikið pláss undir mælaborðinu og það tók slatta af kartonum. Ég var einu sinni búinn að fylla mælaborðið af kartonum og stinga frosinni T-bone steik undir buxnastrenginn niður í klof sem var ekki mjög þægilegur staður og ég treysti á að komast fljótt í gegnum hliðið. Þetta voru þykkar og stórar sneiðar og þegar slíkar aðgerðir voru í gangi, sem  auðvitað var nokkuð oft hafði það afleiðingar ef ferðin í gegnum hliðið gengi ekki hratt fyrir sig. Fermingarbróðirinn sem fékk tveggja kílóa beingaddað nautið ofan á sig hvarf nær sporlaust og góðu fréttirnar voru að á þessum tíma var hann fljótur að jafna sig og kom alltaf sterkari til baka. Ég keyrði niður í hlið, með kjöthleifinn í klofinu og mælaborðið fullt af kortunum og skottið leit út eins og lager í raftækjabúð. Góðvinur minn í hliðinu tók á móti mér, hann rak hausinn inn um opin gluggann og spurði spurninga. Gekk svo í kringum bílinn og opnar hurðina farþegamegin, lítur í kringum sig, stingur sér inn í bílinn og rífur upp hanskahólfið. Djöfull hvað mér var orðið kalt í klofinu, allur farinn að iða í sætinu eins og krakkaskítur með njálg í rassgatinu, -þegar hann skellir aftur hanskahólfinu. Við skellinn dettur eitt kartonið undan mælaborðinu niður á gólf beint fyrir framan nefið á löggunni. Já sæll segir lögregluþjónninn og tekur upp kartonið um leið og hann beygir sig og gjóar augunum undir mælaborðið. Hann var þéttur á velli og kroppurinn álíka lipur eins og olíutunna í bolvindu og hann sá ekki fleiri karton. Hann skipar mér að koma með sér inn í varðskúrinn, djöfullinn sjálfur hugsa ég með nokkurra kílóa kjötstykki í klofinu. Það var ótrúlega óþægilegt að labba vel kýldur með frosna T-bone steikina í klofinu sem var að þiðna innanundir nærbuxunum á meðan ég gekk í áttina að skúrnum. Ég klemmdi saman lappirnar og rasskinnarnar en rakinn var orðin óþægilegur og ég var að verða pissublautur í klofinu og lærin byrjuð að skjálfa af kulda. Eftir smá rekistefnu í skúrnum segir löggan við mig, „Jón minn, ef ég væri að smygla sígarettum þá setti ég pakkana í vasann.“ Ég slapp með skrekkinn og dreif mig út í bíl og keyrði frá hliðinu og stoppaði eins fljótt og ég gat og stakk hendinni niður í klofið á mér og sótti steikina í „hlandblautar“ buxurnar. Það var mikill léttir fyrir fermingabróðurinn sem var orðinn eins og frostpinni sem vantaði ekkert annað en uppreisn æru!“ 

 

Nýjustu fréttir

Ný bók frá Ásmundi Friðrikssyni 
Eyjafréttir og Fretta.is í samstarf
Pysjurnar bæði fleiri og þyngri í ár
Radarhýsi rís á Stórhöfða
Styrkur Eyjafrétta liggur líka hjá lesendum
Vertu velkomið haust
Íþróttamiðstöðin eitt af táknum endurreisnar Eyja
ÍBV tapaði með fjórum mörkum gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.