Fjármagn ótryggt fyrir Herjólf III sem varaskip í vetur
Bæjarstjórn kallar eftir fjármagni frá innviðaráðuneytinu :: Vill jafnframt láta reyna á fyrirbyggjandi dýpkun við Landeyjahöfn
Herjólfur III og Herjólfur IV í Vestmannaeyjahöfn. Ekki hefur verið tryggt fjármagn til að Herjólfur III geti sinnt hlutverki varaskips í vetur. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Ekki hefur verið tryggt fjármagn til að reka Herjólf III sem varaskip fyrir Herjólf IV á komandi vetri. Bæjarstjórn Vestmannaeyja leggur þunga áherslu á að úr því verði bætt og að fyrirbyggjandi dýpkun Landeyjahafnar verði jafnframt tryggð.

Samgöngumál voru rædd á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja á miðvikudag. Þar fór Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri yfir fund bæjarráðs með Vegagerðinni um stöðu varaskips fyrir Herjólf IV.

Vestmannaeyjabær hefur lagt áherslu á að Herjólfur III verði tiltækur í Vestmannaeyjum í vetur til að tryggja öryggi og fyrirsjáanleika í samgöngum milli lands og Eyja. Fjármagn til reksturs skipsins sem varaskips hefur hins vegar ekki verið tryggt.

Viðræður standa yfir milli Vegagerðarinnar, Herjólfs ohf. og Vestmannaeyjabæjar um mögulega aðkomu Herjólfs ohf. að umsjón og mönnun Herjólfs III í vetur. Að mati bæjarstjórnar er nauðsynlegt að Vegagerðin fái það fjármagn sem þarf svo skipið geti sinnt hlutverki varaskips.

Fyrirbyggjandi dýpkun til skoðunar

Á fundinum var einnig farið yfir stöðuna varðandi dýpkun Landeyjahafnar. Belgíska fyrirtækið Jan De Nul tekur við dýpkun hafnarinnar 15. september og hefur lagt til breytt verklag, meðal annars svokallaða bufferdýpkun.

Með þeirri aðferð er farið í fyrirbyggjandi dýpkun til að auka svigrúm áður en sandur safnast upp og aðstæður versna. Vegagerðin hefur lýst áhuga á að láta reyna á aðferðina.

Vilja koma í veg fyrir að ástandið endurtaki sig

Bæjarstjórn samþykkti sameiginlega bókun þar sem þung áhersla er lögð á að það ástand sem skapaðist þegar Landeyjahöfn lokaðist vikum saman endurtaki sig ekki.

Í bókuninni segir að nauðsynlegt sé að Herjólfur III verði varaskip fyrir Herjólf IV í vetur á meðan framtíð og rekstraröryggi Landeyjahafnar skýrist. Þá er skorað á innviðaráðuneytið að tryggja Vegagerðinni fjármagn bæði til reksturs varaskipsins og fyrirbyggjandi dýpkunaraðgerða.

Nýjustu fréttir

Fjármagn ótryggt fyrir Herjólf III sem varaskip í vetur
Í Betel er bara lifað
HSU kynnti nýsköpun í heilbrigðisþjónustu
Fimm börn fædd í Betel 
Eyjakonur sækja Íslandsmeistarana heim
ÍBV mætir Stjörnunni í fyrsta leik neðri hlutans
Syðsti hluti Heimaeyjar eins og við sjáum hann sjaldan
50 ára sögu Íþróttamiðstöðvarinnar fagnað
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.