ÍBV tapaði gegn Stjörnunni í fyrsta leik neðri hlutans
Úr leik ÍBV og Stjörnunnar á Hásteinsvelli fyrr í sumar. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

ÍBV og Stjarnan mættust í fyrstu umferð neðri hluta Bestu deildar karla á Samsung vellinum í Garðabæ í dag. Fyrir leikinn var Stjarnan á toppi neðri hlutans en ÍBV í botnsætinu. Stjörnumenn reyndust sterkari aðilinn í leiknum og unnu 2-0 sigur.

Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks. Eyjamenn urðu þó fyrir áfalli á 14. mínútu þegar framherjinn Omar Sowe þurfti að fara af velli vegna meiðsla.

Stjarnan braut ísinn eftir tæplega hálftíma leik þegar Benedikt V. Warén skoraði eftir sendingu frá Emil Atlasyni. Benedikt V. Warén var aftur á ferðinni aðeins fjórum mínútum síðar og tvöfaldaði forystu Stjörnumanna með góðu skoti fyrir utan teig.

Arnór Ingi Kristinsson fékk gott færi til að minnka muninn fyrir ÍBV undir lok fyrri hálfleiks en Árni Snær Ólafsson, markvörður Stjörnunnar, varði frá honum. Staðan 2-0 í hálfleik. 

Eyjamenn mættu beittari til leiks í síðari hálfleik en voru ekki að ná að skapa sér nein alvöru færi. Það má því nánast segja að leikurinn hafi nokkurn veginn fjarað út og Stjarnan fagnað 2-0 sigri.

ÍBV er ennþá í botnsæti í neðri hlutans með 18 stig. Stjarnan er í toppsætinu með 31 stig.

Úrslit dagsins:

  • Stjarnan 2 – 0 ÍBV
  • FH 3 – 0 KA
  • Valur 4 – 1 Þór
  • KR 5 – 1 ÍA

 

Staðan í neðri hluta:

  1. Stjarnan – 31 stig
  2. Valur – 30 stig
  3. FH – 24 stig
  4. Þór – 21 stig
  5. KA – 20 stig
  6. ÍBV – 18 stig

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Stjörnunni í fyrsta leik neðri hlutans
Fjármagn ótryggt fyrir Herjólf III sem varaskip í vetur
Í Betel er bara lifað
HSU kynnti nýsköpun í heilbrigðisþjónustu
Fimm börn fædd í Betel 
Eyjakonur sækja Íslandsmeistarana heim
ÍBV mætir Stjörnunni í fyrsta leik neðri hlutans
Syðsti hluti Heimaeyjar eins og við sjáum hann sjaldan
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.