Treg veiði hjá Bergey
Bergey Ve Ur Hofn
Bergey VE á leið á miðin. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Bergey VE landaði nánast fullfermi í Neskaupstað í gærmorgun. Aflinn var að langmestu leyti þorskur en einnig var dálítið af ufsa, ýsu og fleiri tegundum.

„Sannast sagna er ekki mikið fjör í veiðinni um þessar mundir. Hjá togurum er víða afar rólegt en það hlýtur að breytast þegar haustar fyrir alvöru,“ segir Ragnar Waage Pálmason skipstjóri í samtali við heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Veitt var á mörgum miðum í túrnum. Bergey hóf veiðar í Reynisdýpi, hélt þaðan í Meðallandsbugt, á Ingólfshöfða og í Breiðamerkurdýpi. Að sögn Ragnars var veiðin misjöfn á þessum slóðum og yfirleitt heldur treg.

Áhöfnin reyndi því aftur fyrir sér á Ingólfshöfða áður en stefnan var tekin austur fyrir land. Þar var fyrst veitt við Hvalbak en túrnum lauk á miðunum Utanfótar og við Örvæntingu.

Bergey hélt aftur til veiða skömmu eftir að löndun lauk. Birtingur NK landaði einnig í Neskaupstað á sunnudag. Aflinn var um 90 tonn og hélt skipið aftur til veiða í gær.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Hundrað ára afmæli, salernin á Vigtartorgi og stig gegn toppliðinu
Elmar markahæstur í sigri Nordhorn-Lingen
Sigurganga Erlings heldur áfram í þýsku B-deildinni
Fæst nóg stórgrýti í brimvarnargarðinn við Eiðið?
Rúmlega 40 milljóna salernisframkvæmd hélt áfram án byggingarleyfis
Svekkjandi tap hjá Heimi og lærisveinum gegn Austurríki
Handverk og mannlíf í Höllinni
ÍBV nældi í stig gegn toppliði Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.