Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að hafin verði vinna við breytingu á deiliskipulagi vegna áforma um tvö ný fjölbýlishús á lóðinni við Sólhlíð 17. Alls er gert ráð fyrir fjórum íbúðum í húsunum.
Fyrirspurn lóðarhafa gerir ráð fyrir að lóðinni verði skipt upp í þrjár lóðir. Nýju húsin, sem fá heitin Sólhlíð 17b og 17c, eiga að standa til móts við Fífilgötu.
Sólhlíð 17b verður þrjár hæðir með tveimur íbúðum. Önnur verður um 67 fermetrar en hin um 110 fermetrar á tveimur hæðum. Sólhlíð 17c verður tveggja hæða hús með tveimur íbúðum, um 67 fermetrum hvorri. Gert er ráð fyrir tveimur bílastæðum við hvort hús.
Ekki er gert ráð fyrir breytingum á Tindastóli, núverandi húsi á lóðinni. Í tölvupósti lóðarhafa kemur þó fram að fyrirhugað sé að fegra húsið og færa það til nútímans þannig að það njóti sín samhliða nýbyggingunum.
Samkvæmt kynningargögnum er gert ráð fyrir nútíma nýklassískum byggingarstíl, með samhverfu, látlausum línum og blöndu hefðbundinna og nútímalegra byggingarefna.
Umhverfis- og skipulagsráð telur áformin samræmast gildandi aðalskipulagi, þar sem meðal annars er fjallað um möguleika á þéttingu byggðar við Sólhlíð og Kirkjuveg með grisjun og breytingum á lóðum.
Ráðið samþykkti að vinna við deiliskipulagsbreytingu á reitnum yrði hafin og fól skipulagsfulltrúa að ræða við lóðarhafa.