Karlalið ÍBV í handbolta tók á móti HK í 4. umferð Olís deildar karla í Vestmannaeyja í kvöld. Leiknum lauk með eins marks sigri gestanna, 34-35, í æsispennandi leik.
Jafnræði var með liðunum á upphafsmínútum leiksins og var staðan jöfn, 7-7, eftir tæpar tíu mínútur. HK náði þá undirtökunum og náði þriggja marka forskoti, 9-12, þegar stundarfjórðungur var liðinn. Eyjamenn komu til baka og jöfnuðu metin í 18-18 þegar skammt var eftir af fyrri hálfleik. HK svaraði með góðum kafla undir lok hálfleiksins og fór með tveggja marka forskot, 19-21, inn í hálfleik.
Eyjamenn jöfnuðu metin í upphafi síðari hálfleiks og liðin skiptust svo á að leiða. Staðan var jöfn, 28-28, þegar stundarfjórðungur var til leiksloka og enn allt í járnum, 33-33, þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir. HK menn náðu eins marks forystu, 33-34, þegar lítið var eftir en ÍBV jafnaði þegar nokkrar sekúndur voru til leiksloka. HK menn brunuðu þá upp í sókn og skoruðu sigurmarkið á lokasekúndunni. Niðurstaðan því 34-35 tap hjá ÍBV á heimavelli.
Daníel Þór Ingason var markahæstur í liði ÍBV með sjö mörk en Trúgvi Hávardsson, hjá HK, var markahæstur í leiknum með tíu mörk.
ÍBV situr í 4. sæti deildarinnar með fjögur stig eftir fjóra leiki, en HK náði í sín fyrstu tvö stig með sigrinum og situr í 9. sæti.
Mörk ÍBV: Daníel Þór Ingason 7 mörk, Kristófer Ísak Bárðarson 6, Dagur Arnarsson 5, Magnús Dagur Jónatansson 4, Sigtryggur Daði Rúnarsson 4, Sveinn José Rivera 3, Andri Magnússon 1, Anton Frans Sigurðsson 1, Atli Steinn Arnarson 1, Haukur Leó Magnússon 1, Jason Stefánsson 1.