Íslendingar seldu loðnuhrogn fyrir 66 milljarða króna 2009-2018
29. janúar, 2020
„Það hefur tekið okkur um fjörtíu ár að búa til markað fyrir loðnuhrognin í Japan og hættan er sú að ef ekki berst hráefni í tvö ár færist neyslan yfir á aðra afurð […] Þegar talað er um loðnuhrogn í Japan er átt við íslensk loðnuhrogn, ekkert annað.“

Akaimasa Takuma, forstjóri og aðaleigandi Azuma Foods, stærsta fyrirtækisins í vinnslu og sölu loðnuhrogna í Japan, dregur þannig saman í fáum orðum mögulegar/líklegar afleiðingar þess ef loðna veiðist ekki við Ísland annað árið í röð. Tilvitnunin er úr viðtali í Morgunblaðinu 29. janúar 2020 (sjá hér fyrri hluta viðtalsins og síðari hlutann).

Meira er í húfi fyrir japanskan markað, sjávarútveg og þjóðarbú á Íslandi en margan grunar. Boðskapur fulltrúa þriggja japanskra fyrirtækja í Íslandsferð í fyrri viku var því afskaplega skýr. Þeir lögðu til við Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra að gefinn yrði út lágmarkskvóti í loðnu til þess hreinlega að reyna að koma í veg fyrir varanlegar og alvarlegar breytingar á markaði loðnuhrogna.

 


Í hnotskurn heildarmyndin svona:

  • Íslendingar sjá kaupendum fyrir 85% loðnuhrogna á heimsmarkaði.
  • Verðmæti útfluttra loðnuhrogna frá Íslandi nam liðlega 66 milljörðum króna frá 2009 til 2018.
  • Útflutningsverðmætið hefur aukist undanfarin ár og var að meðaltali um 7 milljarðar króna á ári, fyrir loðnubrestinn 2019.
  • Allir markaðir fyrir loðnuhrogn eru nú tómir.

Fjarri því að íslenskar sjávarafurðir „selji sig sjálfar“

Nishiro Yamazaki, framkvæmdastjóri innkaupa og framleiðslu uppsjávarafurða úr Norður-Atlantshafi hjá Maruha Nichiro, stærsta framleiðslufyrirtæki sjávarfangs í veröldinni (11 þúsund starfsmenn, velta um þúsund milljarðar króna á ári), segir í Morgunblaðinu um afleiðingar loðnubrests líka 2020:

„Til dæmis myndi það hafa í för með sér að allar birgðir myndu klárast í júní 2020, eftir það verður ekki unnið úr neinu hráefni sem um sinn gerir það að verkum að framleiðendur verða að nýta annað hráefni eða í versta tilfelli segja upp starfsfólki. Hvað varðar loðnuhrogn gætum við þurft að styðjast við annað hráefni eins og síldarhrogn. Þegar hráefninu hefur verið skipt út er ekki endilega líklegt að loðnuhrognin verði tekin til notkunar á ný þó að loðnukvóti verði gefinn út á næsta ári.“

Vel má vera að einhverjir geri lítið úr þessum varnaðarorðum japanska kaupsýslumannsins af því íslenskar sjávarafurðir „selji sig sjálfar“ og markaðurinn „jafni sig“ síðar. Það er bara því miður fjarri veruleikanum.

Yamazaki vísar til dæmis til þess að loðnuhrogn koma fyrir í innihaldslýsingu á vöruumbúðum verslunarkeðja og það þarf nýjar umbúðir fyrir allan Japansmarkað ef síldarhrogn koma í stað loðnuhrogna. Það tekur verslunarfyrirtækin þar að auki að lágmarki hálft ár að samþykkja breytta innihaldslýsingu og engan veginn er gefið að þau taki annan slíkan snúning 2021 ef loðnukvóti verður þá gefinn út við Ísland, með öllum þeim kostnaði sem svona snúningum fylgir.

Ónefnd eru þá örlög lítilla fjölskyldufyrirtækja vítt og breitt um Japan sem framleiða loðnuafurðir til neytenda. Við þeim blasa þrengingar, uppsagnir starfsfólks, meginbreytingar í rekstri í ljósi loðnubrests eða í versta falli þrot.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst