Fjölbreytt októberblað með sérblaði um Kveikjum neistann
Októberblað Eyjafrétta er komið út með fjölbreyttu efni og sérblaði um fyrstu fimm ár Kveikjum neistann í Vestmannaeyjum.

Nýjasta vefblað Eyjafrétta er komið út, alls 37 blaðsíður að meðtöldu sérblaði um Kveikjum neistann. Viðtöl, mannlíf, menning, náttúra og íþróttir skipa sinn sess í blaðinu, þar sem meðal annars er rætt við fréttafólk með rætur í Eyjum og fólk sem nýtir fjarvinnu til að búa og starfa í Vestmannaeyjum.

Með októberblaðinu fylgir viðamikið sérblað um fyrstu fimm ár Kveikjum neistann í Grunnskóla Vestmannaeyja. Þar er horft til reynslunnar af verkefninu, niðurstaðna rannsókna og þess hvort hugmyndafræðin geti nýst fleiri skólum hér á landi og erlendis.

Rætt er við Hermund Sigmundsson, prófessor og hugmyndasmið verkefnisins, Ingu Sæland, barna- og menntamálaráðherra, skólastjórnendur, kennara og foreldra. Helgi Rúnar Óskarsson, forstjóri 66°Norður, segir frá því hvernig reynslan af skólagöngu eigin barna kveikti áhuga hans á menntamálum og Tryggvi Hjaltason, framkvæmdastjóri Andvara, fjallar um umbætur í menntakerfinu og innblásturinn frá Vestmannaeyjum. Þá skrifa Kári Bjarnason og Svava Þ. Hjaltalín um þátt bókasafnsins og hugmyndafræðina að baki verkefninu.

Í aðalblaðinu segja Ólöf Ragnarsdóttir, fréttakona á RÚV, og Smári Jökull Jónsson hjá Sýn frá leið sinni úr Eyjum í fjölmiðlastarf, fjölbreyttum verkefnum og tengslunum við heimahagana. Fjórir Eyjamenn segja jafnframt frá reynslu sinni af fjarvinnu, sveigjanleikanum og því hvernig þetta vinnufyrirkomulag gerir þeim kleift að starfa fyrir fyrirtæki annars staðar á landinu og erlendis.

Clara Sigurðardóttir rifjar upp þrjú ár í Flórens, þar sem hún lærði innanhúshönnun, og Eyjahjónin Eyþór Viðarsson og Hem Brewster kynna uppvakningaævintýrið Varúð: Dead Ísland, 48 þátta hlaðvarpsseríu sem tekin var upp í heimastúdíói þeirra.

Erpur Snær Hansen fjallar um besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga og stöðu lundastofnsins. Hann ræðir einnig aðgerðir vegna dúfa í Eyjum. Þá er farið yfir tillögur um vernd kóralrifa sunnan Íslands og hvað þær gætu þýtt fyrir fiskveiðar.

Tónlistararfur Betel fær athygli í viðtali við Helga Rasmussen Tórzhamar og Sigurmund Gísla Einarsson um plötuna Sálmastund með þér. Einnig er fjallað um aldarafmæli Landhelgisgæslunnar og frumkvæði Eyjamanna að upphafi starfseminnar. Óskar Pétur Friðriksson sýnir svipmyndir úr ferð með Herjólfi og af dýpkunarframkvæmdum í Landeyjahöfn.

Í íþróttahlutanum kynnumst við knattspyrnukonunni Milenu Mihaelu Patru, íþróttakonu mánaðarins, ræðum við Ágúst Gísla Helgason um pílukast og lítum við hjá fimleikafélaginu Rán. Þá er karlaráðstefnan Skjöldur kynnt og Andri Hugo Runólfsson rifjar upp plötukaup sem höfðu ævilöng áhrif.

Þetta og margt fleira má lesa í nýjasta vefblaði Eyjafrétta. Góða skemmtun!


 

Nýja tölublaðið er aðgengilegt öllum áskrifendum á vef Eyjafrétta. Þeir sem vilja gerast áskrifendur geta skráð sig hér. Þeir áskrifendur sem eiga enn eftir að virkja rafræna áskrift geta haft samband hér.

Nýjustu fréttir

Fjölbreytt októberblað með sérblaði um Kveikjum neistann
Lífshagsmunir gegn græðgishagsmunum
Fagnar skilaboðum ráðherra um varamótora
Kótilettur til góðs í Höllinni
Æfðu viðbrögð við eldsvoða í Kjarnanum
Aglow-konur hittast í kvöld
Fótboltasumarið gert upp hjá yngri flokkum ÍBV
Foreldrafundur um Kveikjum neistann á morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.