Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Sjómenn að störfum, fiskvinnsla, fermingar og götur sem hafa tekið stakkaskiptum
Fyrsti þáttur „Vestmannaeyja í gegnum linsu liðins tíma“ veitir innsýn í mannlíf og atvinnulíf Eyjanna á síðustu öld. Mynd: Sagnheimar.

Í fyrsta þætti „Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma“ fá áhorfendur að skyggnast inn í mannlíf Eyjanna á síðustu öld. Elsta myndefnið er frá árinu 1924.

Eyjafréttir birta hér upptöku frá Sagnheimum þar sem gamlar kvikmyndir úr Vestmannaeyjum eru sýndar með skýringum og samtali við sýningargesti. Staldrað er við einstök atriði, borin kennsl á fólk og báta og rifjaðar upp sögur sem tengjast myndunum.

Í upphafi er sýnt frá heimsókn Sveins Björnssonar, fyrsta forseta Íslands, til Vestmannaeyja í ágúst 1944. Þaðan liggur leiðin aftur til ársins 1924, þegar ljósmyndarinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Loftur Guðmundsson myndaði í Eyjum.

Gamlar upptökur fá nýtt líf

Í kynningu sýningarinnar er sagt frá starfi Heimakletts, félags sem var stofnað árið 1949 með það að markmiði að kynna menningu og mannlíf Vestmannaeyja. Félagið átti mikilvægan þátt í að varðveita þær heimildir sem nú er miðlað í Sagnheimum.

Erlendur Sveinsson kom með um níu klukkustundir af myndefni til safnsins og hóf samstarf við það. Gunnar Júlíusson vann úr efninu og setti saman átta þætti, um 35 mínútur hvern. Vinnan fól meðal annars í sér klippingu, litaleiðréttingu og lagfæringar á gömlum upptökum. Í hverjum þætti er blanda af atvinnulífi, mannlífi og umhverfi bæjarins.

Andlit, hús og minningar

Í fyrstu upptökunni má meðal annars sjá báta og sjómenn, löndun og fiskvinnslu, kirkjulíf og fermingar, garða og hús, undirbúning brennu og skemmtanalíf. Myndirnar sýna bæði hversdagsleg augnablik og breytingar á bænum, þar á meðal hús og hverfi sem síðar hurfu í eldgosinu 1973.

Samtalið í salnum gefur myndunum aukið líf. Sýningargestir hjálpa til við að þekkja andlit, rifja upp nöfn og tímasetja atburði. Minningar þeirra og frásagnir verða þannig hluti af ferðinni um Eyjar liðins tíma.

Upptökuna má sjá hér fyrir neðan.

Play Video

Nýjustu fréttir

Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
Eyjakonur mæta taplausu liði ÍR í dag
ÍBV tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Powerade bikarsins með sigri á ÍR
Fullnaðarhönnun World Class ekki skilað
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.