Ræða stöðu ferðaþjónustunnar við þingmenn Suðurkjördæmis
Ferðamenn á ferð í Vestmannaeyjum. Staða og framtíð ferðaþjónustunnar í Suðurkjördæmi verður til umræðu á fundi á Selfossi á morgun.

Staða og framtíð ferðaþjónustunnar í Suðurkjördæmi verður til umræðu á opnum fundi á Hótel Selfossi fimmtudaginn 15. október. Fundurinn stendur frá kl. 17 til 19 og verður jafnframt streymt á vef Samtaka ferðaþjónustunnar.

Samtök ferðaþjónustunnar, Markaðsstofa Suðurlands og Markaðsstofa Reykjaness standa að fundinum, sem er hluti af fundarröðinni Mótvindur. Þar verður fjallað um rekstrarskilyrði greinarinnar og fyrirhugaðar skatta- og gjaldabreytingar.

Skatta- og gjaldahækkanir til umræðu

Í tilkynningu fundarboðenda segir að á Alþingi liggi fyrir mál sem geti haft veruleg áhrif á ferðaþjónustuna og atvinnulíf í Suðurkjördæmi. Þar séu meðal annars fyrirhugaðar skattahækkanir á baðlón, krónutöluhækkanir á gistináttaskatti og innviðagjaldi, auk frumvarps um náttúru- og innviðagjald, svokallaðan náttúrupassa.

Fundarboðendur leggja áherslu á að málin snerti einnig atvinnu, fjárfestingu, samkeppnishæfni og byggðaþróun. Því sé mikilvægt að fulltrúar kjördæmisins ræði þau við fólk sem starfar í greininni.

Á fundinum mun Deloitte kynna niðurstöður greiningar sem fyrirtækið hefur unnið fyrir SAF um áætlaðar skatta- og gjaldahækkanir á ferðaþjónustu í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar.

Erindi flytja Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF, Frímann Snær Guðmundsson, meðeigandi Deloitte, Kristján Pétur Kristjánsson, eigandi Konvin Hotel, og Haraldur Þór Jónsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps.

Þingmenn sitja fyrir svörum

Seinni hluti fundarins verður helgaður samtali við þingmenn Suðurkjördæmis um þau mál sem eru efst á baugi hjá ferðaþjónustunni.

Í pallborðsumræðum taka þátt Ása Berglind Hjálmarsdóttir frá Samfylkingu, Guðrún Hafsteinsdóttir frá Sjálfstæðisflokki, Halla Hrund Logadóttir frá Framsóknarflokki, Karl Gauti Hjaltason frá Miðflokki, Sandra Sigurðardóttir frá Viðreisn og Sigurður Helgi Pálmason frá Flokki fólksins. Jóhannes Þór Skúlason stýrir umræðunum.

Fundarstjórar eru Þuríður H. Aradóttir Braun, forstöðumaður Markaðsstofu Reykjaness, og Ragnhildur Sveinbjarnardóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurlands.

Fundurinn er opinn öllum áhugasömum. Þau sem ætla að mæta á staðinn eru beðin um að skrá sig á vef SAF. Einnig verður hægt að fylgjast með beinni útsendingu á vef samtakanna.

Nýjustu fréttir

Þakplata farin að losna – hviður náðu 51 m/s á Stórhöfða
Skólahaldi seinkað til klukkan 9 vegna veðurs
Uppfært: Veðurofsi í Eyjum – 50 m/s hviður á Stórhöfða
Ræða stöðu ferðaþjónustunnar við þingmenn Suðurkjördæmis
Val á endurskoðanda aftur til bæjarráðs
Appelsínugul viðvörun: Vara við vindhviðum yfir 40 m/s þegar börn fara í skóla
Hver er bestur, Óli prestur
SFS: Ekki öll nótt úti um stærri loðnukvóta
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.