Varðskipið Freyja flutti í dag búnað til Vestmannaeyja vegna uppsetningar radarhýsis á Stórhöfða. Framkvæmdin er liður í uppbyggingu og eflingu ratsjárvöktunar á hafsvæðinu við Eyjar.
Halldór Halldórsson festi flutninginn á myndband. Í myndbandi hans má sjá Freyju við bryggju, áhöfn við hífingu búnaðarins og flutning hans áfram landleiðina.
Eins og Eyjafréttir greindu frá í september hefur Landhelgisgæsla Íslands fengið samþykki fyrir uppsetningu radarhýsisins. Það verður staðsett um 48 metra suðsuðvestur af Stórhöfðavita, á landi í eigu íslenska ríkisins sem er í umsjón Vegagerðarinnar. Um er að ræða sérhannað hýsi fyrir ratsjár- og fjarskiptabúnað ásamt tilheyrandi tengingum og búnaði.
Í fyrri frétt Eyjafrétta kom fram að leyfi Vegagerðarinnar fyrir staðsetningu mannvirkisins lægi fyrir, auk jákvæðrar umsagnar Geislavarna ríkisins vegna fyrirhugaðs ratsjárbúnaðar. Erindið var samþykkt á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa Vestmannaeyjabæjar sem tilkynningarskyld mannvirkjagerð, undanþegin byggingarheimild og byggingarleyfi.