Herjólfur III tilbúinn til afleysinga
Herjólfur III og Herjólfur IV í Vestmannaeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Herjólfur III er tilbúinn til afleysinga ef þörf krefur eftir viðamiklar endurbætur í sumar, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar. Haffærisskírteini skipsins er þó enn í útgáfuferli hjá Samgöngustofu. Skipið er ekki í söluferli að svo stöddu og beðið er niðurstöðu starfshóps um framtíð ferjumála.

Á bæjarstjórnarfundi í Vestmannaeyjum 13. október kom fram í máli bæjarstjóra að Herjólfur III væri kominn með haffærisskírteini. Í svörum G. Péturs Matthíassonar hjá Vegagerðinni við fyrirspurn Eyjafrétta kemur hins vegar fram að útgáfu þess sé ekki lokið.

„Vegagerðin hefur sótt um haffæri fyrir Herjólf III og er það í útgáfuferli hjá Samgöngustofu. Gert er ráð fyrir að haffærið verði gefið út öðru hvoru megin við helgina,“ segir í svarinu. Ekki kemur fram til hversu langs tíma skírteinið muni gilda.

Aðspurður hvort frekari undirbúningi þurfi að ljúka áður en skipið geti sinnt afleysingum segir Pétur skipið tilbúið ef þörf krefur. Viðamiklar endurbætur hafi verið gerðar á því í sumar.

Ekki liggur þó fyrir í svörunum hversu langan fyrirvara þurfi til að manna skipið og hefja siglingar. Vegagerðin sé að hefja samtal við Vestmannaeyjabæ og Herjólf ohf. um þau mál. Áhöfn Herjólfs hafi jafnframt farið um borð og framkvæmt æfingar.

Þá staðfestir Pétur að Herjólfur III sé ekki í söluferli að svo stöddu. Ráðherra hafi skipað starfshóp sem skoði framtíðaráform í ferjumálum og ákvörðun um skipið verði væntanlega tekin þegar þeirri vinnu lýkur. Starfshópurinn á að skila skýrslu í desember.

Nýjustu fréttir

Herjólfur III tilbúinn til afleysinga
Sigur hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Póllandi
Freyja flutti búnað fyrir radarhýsi til Eyja
Það á að hrósa því sem vel er gert
Hádegismatur með fjölskyldunni forréttindi 
Stærsti kosturinn að geta búið í Eyjum 
Líkamsrækt við Hástein skrefi nær – tveir sátu hjá
Spegilmyndir í morgunblíðunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.