Karlalið ÍBV í handbolta mátti þola 36-28 tap gegn Val í 7. umferð Olís deildar karla í N1-höllinni í kvöld.
Jafnræði var með liðunum á upphafsmínútum leiksins og var staðan 4-3 eftir sjö mínútna leik. Eftir það tóku Valsmenn hins vegar öll völd á vellinum og náðu sex marka forskoti, 12-6, þegar um stundarfjórðungur var liðinn. Heimamenn náðu mest sjö marka forystu í fyrri hálfleik og leiddu 19-13 þegar liðin gengu til búningsherbergja.
Valsmenn héldu áfram að hafa yfirhöndina í síðari hálfleik og voru komnir átta mörkum yfir, 24-16, snemma í hálfleiknum. Eyjamenn náðu að minnka muninn í fimm mörk, 29-24, þegar stundarfjórðungur var til leiksloka. Valsmenn héldu hins vegar forskotinu út leikinn og fögnuðu að lokum öruggum átta marka sigri. Lokatölur urðu 36-28.
Atli Steinn Arnarson var markahæstur í liði ÍBV með sjö mörk, en Gunnar Róbertsson var markahæstur í leiknum með 13 mörk fyrir Val. Sigurmundur Gísli Unnarsson varði átta skot í marki ÍBV og Petar Jokanovic varði þrjú.
Eftir sjö umferðir situr ÍBV í sjötta sæti deildarinnar með sex stig, en Valur er í fjórða sæti með tíu stig.
Mörk ÍBV: Atli Steinn Arnarson 7 mörk, Sveinn José Rivera 5, Magnús Dagur Jónatansson, Anton Frans Sigurðsson 3, Dagur Arnarsson 2, Daníel Þór Ingason 2, Jason Stefánsson 2, Kristófer Ísak Bárðarson 2, Haukur Leó Magnússon 1.
Fram 23 – 36 Haukar
Þór 37 – 32 Stjarnan
Selfoss 28 – 34 Víkingur R.
KA 32 – 28 Afturelding
Valur 36 – 28 ÍBV
HK 29 – 33 FH