
Margrét Kristjánsdóttir og Íris Pálsdóttir, kennarar í Hamarsskóla hafa tekið þátt í þróunarvinnunni við Kveikjum neistann frá upphafi. Þær segja verkefnið hafa kallað á miklar breytingar í kennsluháttum og nýja hugsun. Einn stærsti lærdómurinn hafi verið að hægja á og gefa grunnþáttum námsins meiri tíma.
Margrét og Íris hafa ásamt Erlu Signýju Sigurðardóttur og Elínborgu Eir Sigurfinnsdóttur unnið að þróun verkefnisins frá upphafi. Eftir rúm fimm ár segja þær reynsluna góða og sjá meiri gleði, öryggi og seiglu hjá nemendum.
Hver er ykkar reynsla af Kveikjum neistann og hvaða breytingar hafið þið helst séð hjá nemendum?
„Okkar reynsla er mjög góð og margvísleg,“ segir Margrét. „Ein stærsta breytingin er að við höfum hægt verulega á náminu. Við förum vel og vandlega í grunnþætti íslensku og stærðfræði og leggjum mikla áherslu á endurtekningu. Stundataflan hefur líka verið einfölduð og hreyfing fær meira vægi.“
Íris segir þjálfunartímana hafa reynst sérstaklega vel. „Fjórum sinnum í viku erum við með þjálfunartíma þar sem þriðji og jafnvel fjórði kennarinn kemur inn. Þetta eru miklir gæðatímar. Nemendum er skipt í hópa eftir styrkleikum og hver og einn fær verkefni og áskoranir við hæfi.“
Hugarfar skipar einnig stóran sess. „Við vinnum markvisst með hugtök eins og seiglu, jákvæðni, hjálpsemi og vöxt,“ segir Margrét. „Markmiðið er að nemendur tileinki sér þessa hugsun og noti hana sjálfir. Við teljum þessar áherslur hafa skilað sér í aukinni gleði og betri líðan.“
Foreldrasamstarfið er stór þáttur í verkefninu og þar skiptir heimalesturinn miklu máli. „Við viljum fá foreldrana með okkur á lestina,“ segir Íris. „Það gerist lítið án góðrar samvinnu heimilis og skóla. Þetta á sérstaklega við um heimalesturinn sem skiptir gríðarlega miklu máli. Þar þurfa skólinn og heimilið að vinna saman.“
Finnið þið mun á áhuga, sjálfstæði og viðhorfi nemenda til náms?
„Já, svo sannarlega,“ segir Margrét. „Við finnum meiri metnað og gleði í lestrinum og jákvæðara viðhorf til heimalestrar. Við sjáum líka mun á seiglu nemenda, enda vinnum við stöðugt með hana.“
Íris nefnir ástríðutímana sem dæmi um hvernig byggja megi upp áhuga og gleði. „Nemendur velja sér viðfangsefni strax að morgni og hlakka síðan til að fara í það í lok dags. Þeir fara því oft glaðir og kátir heim úr skólanum.“
Viðfangsefnin eru valin í samvinnu við nemendur og breytast yfir skólaárið. „Þau hafa meðal annars stungið upp á leir, perlum, sköpun, tækni, boccia, golfi, útileikjum, fótbolta, kubbum, spilum og gönguferðum,“ segir Íris. „Þarna fá þau tækifæri til að sinna einhverju sem þau hafa raunverulegan áhuga á.“
Einn af lykilþáttum Kveikjum neistann er að mæta hverju barni þar sem það er statt.
„Það hefur haft mjög jákvæð áhrif,“ segir Margrét. „Nemendur verða öruggari þegar þeir fá námsefni við hæfi. Fyrir okkur kennarana hefur þetta hins vegar verið mikil áskorun. Það hafa farið ófáir tímar, sviti og tár í þessa vinnu.“
Eftir rúm fimm ár sé hins vegar komin mikilvæg reynsla og þekking. „Stundum er stærsta áskorunin einfaldlega að breyta taktinum og eigin hugsun um kennsluna,“ segir hún.
„Þjálfunartímarnir eru lykilatriði í þessu,“ bætir Íris við. „Þar getum við betur tryggt að allir fái áskoranir miðað við eigin hæfni. Þannig þarf enginn stöðugt að glíma við verkefni sem eru annaðhvort of létt eða of erfið.“
Hvað hefur reynst best – og hvað hefur verið erfiðast?
„Að hægja á öllu stendur upp úr,“ segir Íris. „Sömuleiðis breytingarnar á stundatöflunni, þjálfunartímarnir, ástríðutímarnir og vinnan með hugarfar.“
Margrét segir námsmatið einnig hafa tekið miklum breytingum. „Við í GRV höfum einfaldað námsmatið og gert það skýrara, bæði fyrir okkur og foreldra. Mikil eftirfylgni er með stöðu nemenda og þannig sjáum við betur hvar hvert barn stendur hverju sinni.“
Þær segja þróunarstarfið þó langt frá því að hafa verið auðvelt.
„Við höfum verið í þessu frá upphafi ásamt Erlu Signýju Sigurðardóttur og Elínborgu Eir Sigurfinnsdóttur og vinnan hefur verið bæði mikil og krefjandi,“ segir Margrét. „Við höfum þurft að ryðja brautina, tileinka okkur nýja hugsun og fara út fyrir það sem við þekktum áður.“
„Verkefnið er alltaf í þróun og við höfum þurft að standa og falla með þeim leiðum sem við höfum valið,“ segir Íris. „En við eigum frábært samstarfsfólk sem hefur farið þessa leið með okkur. Allir hafa lagst á eitt um að láta þetta ganga og gera það vel.“
Þær segja stuðninginn ekki aðeins koma innan skólans. „Það er líka frábært að sjá hvað margir í samfélaginu eru tilbúnir að hoppa á lestina,“ segir Margrét og nefnir Bókasafn Vestmannaeyja sérstaklega.
„Samkennarar okkar og allt starfsfólk skólans eiga mikinn heiður skilinn,“ segir Íris. „Þetta hefur verið sameiginleg þróunarvinna og árangurinn verður ekki til nema margir leggist á eitt.“
Viðtalið birtist fyrst í fylgiriti októberblaðs Eyjafrétta um Kveikjum neistann 2026. Viðtal: Ómar Garðarsson.