Ásmundur Friðriksson, fyrrverandi alþingismaður og rithöfundur, les úr nýjustu bók sinni, Sögur af Vellinum, í Safnahúsinu í Vestmannaeyjum á morgun, laugardag klukkan 14.00. Upplesturinn er hluti af dagskrá Safnahelgarinnar.
Bókin kom út í september síðastliðnum og fjallar um mannlíf á Keflavíkurflugvelli á árunum 1952 til 2006, þegar bandaríska varnarliðið hafði þar aðsetur. Þar segir frá íslenskum starfsmönnum varnarliðsins, samskiptum þeirra við Bandaríkjamenn og áhrifum herstöðvarinnar á samfélagið á Suðurnesjum.
Í bókinni eru viðtöl við tuttugu einstaklinga auk fjölda annarra frásagna. Þar kennir ýmissa grasa, allt frá smyglsögum og skrautlegum uppátækjum til vináttu, fjölskyldutengsla og samfélagsbreytinga. Jafnframt er fjallað um hvernig bandarísk menning, nýjar vörur og breyttir lifnaðarhættir settu svip á íslenskt samfélag.
Bókin kemur út á því ári sem tuttugu ár eru liðin frá brottför bandaríska varnarliðsins árið 2006. Með henni hefur Ásmundur safnað saman frásögnum af fólki og samfélagi sem mótaðist í nábýlinu við herstöðina.
Ásmundur hefur sent frá sér nokkrar bækur á undanförnum árum. Meðal þeirra eru Strand í gini gígsins, sem fjallar um Surtseyjargosið og mannlífið í Vestmannaeyjum, og ævisögur Sigurðar Friðrikssonar, Didda Frissa, og Edvards Júlíussonar, Edda í Hópsnesi.
Á laugardaginn gefst gestum Safnahelgarinnar tækifæri til að hlýða á hann lesa úr nýjustu bókinni og segja frá mannlífinu á Vellinum.
Dagskrá laugardags á Safnahelgi:
Kl. 12:00–15:00 – Bókasafn: Hrekkjavökufjör
Safnið tekur á sig hræðilega ásýnd í tilefni hrekkjavökunnar. Villist þú í völundarhúsinu?
Kl. 13:00 – Bókasafn: Sögustund í myrkri
Boðið verður upp á upplestur í myrkri þar sem sögurnar fá að njóta sín í dularfullri stemningu. Þau sem eiga vasaljós mega gjarnan koma með þau.
Kl. 14:00 – Sagnheimar: Bókakynning
Það verður sannkölluð bókmenntaveisla þegar fjórir þekktir rithöfundar koma í heimsókn, kynna nýjustu verk sín og lesa úr bókum sínum:
Kl. 18:00–20:00 – Bókasafn: Grikk eða gott
Í tilefni hrekkjavökunnar verður kvöldopnun á bókasafninu og boðið upp á grikk eða gott. Safnið verður skreytt í anda hrekkjavökunnar og tilvalið að koma og skoða herlegheitin.