Söngvarinn Hafsteinn Þórólfsson kom fram á tónleikum í Eldheimum í gærkvöldi ásamt Einari Scheving, Magnúsi R. Einarssyni og Þóri Ólafssyni. Tónleikarnir voru hluti af dagskrá Safnahelgarinnar í Vestmannaeyjum.
Á efnisskránni voru eyjaperlur og fleiri lög. Hafsteinn á sterkar rætur í Eyjum en langafi hans í móðurætt var tónskáldið Oddgeir Kristjánsson. Hann hefur meðal annars flutt lög Oddgeirs með Tríói Glóða, sem gaf út plötuna Bjartar vonir árið 2011.
Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, mætti í Eldheima með myndavélina og tók myndirnar sem fylgja fréttinni. Hægt er að smella á myndirnar hér að neðan til að opna þær í fullri upplausn.