
Látinna ástvina og samferðafólks var minnst í allraheilagramessu í Landakirkju í gærkvöldi. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, var á staðnum og tók myndirnar sem fylgja fréttinni.
Í guðsþjónustunni var sérstaklega minnst þeirra sem látist höfðu hér í Eyjum og/eða verið jarðsett í kirkjugarði Vestmannaeyja síðastliðna tólf mánuði. Nöfn þeirra voru lesin upp og kveikt á kerti fyrir hvern og einn.
Kór Landakirkju söng undir stjórn Kitty Kovács. Hér að neðan má sjá myndir Óskars Péturs úr guðsþjónustunni.
