Unnið er að dýpkun og breikkun innsiglingarrennunnar í Vestmannaeyjahöfn. Efnið sem tekið er upp er losað í stæði fyrirhugaðs hafnargarðs utan við Eiðið og þjónar framkvæmdin þannig tveimur hafnarverkefnum. Halldór B. Halldórsson sendi Eyjafréttum meðfylgjandi myndband frá dýpkuninni.
Í frétt Vestmannaeyjabæjar í morgun kemur fram að fjarlægja eigi um 50 þúsund rúmmetra af efni úr innsiglingarrennunni og breikka hana. Dýpkunin er hluti verkefnisins við styttingu Hörgaeyrargarðs.
Dæluskipið Sebastiano Caboto, sem er á vegum belgíska fyrirtækisins Jan De Nul, annast dýpkunina. Þegar henni lýkur verður farið í verðkönnun á styttingu garðsins og síðan hafist handa við að stytta hann um allt að 40 metra.
Efnið úr innsiglingunni er losað utan við Eiðið, þar sem nýr hafnargarður er fyrirhugaður. Í frétt bæjarins er þetta sagt stórt skref í verkefninu um hafnaraðstöðu utan við Eiðið.
Þar sem skipið losar farminn í fyrirhuguðu garðstæði telur bærinn að segja megi að uppbygging þar sé hafin, samhliða framkvæmdunum við innsiglinguna.
Myndband Halldórs frá dýpkuninni má sjá hér að neðan.