Nýr sæstrengur en bræðslan gengur fyrir olíu
Unnar Hólm Ólafsson, Skjáskot/youtube.

Þótt nýr sæstrengur sé kominn til Vestmannaeyja gengur fiskimjölsverksmiðja Vinnslustöðvarinnar fyrir olíu. Ástæðan er raforkuverðið, segir Unnar Hólm Ólafsson verksmiðjustjóri í myndbandsviðtali við Halldór B. á vef Vinnslustöðvarinnar. Olían sé umtalsvert ódýrari en rafmagnið og verksmiðjan brenni nú 18 til 25 þúsund lítrum á sólarhring þegar vinnsla stendur yfir.

Í umfjöllun á vef Vinnslustöðvarinnar kemur fram að rafmagn hafi ekki verið nýtt til orkuframleiðslu verksmiðjunnar frá því að nýi sæstrengurinn kom til Eyja fyrr á árinu.

„Olían er mjög hátt þessa dagana en samt er hún umtalsvert ódýrari heldur en rafmagn fyrir verksmiðjuna,“ segir Unnar í viðtalinu. Hann vonast til að aðstæður breytist en sér ekki merki um það eins og staðan er nú. „Við höldum bara áfram að keyra á olíu og fjárfesta í olíu.“

Síldarvinnsla fram í lok nóvember

Vinnsla á síld hófst í september og hefur að sögn Unnars gengið ágætlega. Gert er ráð fyrir að hún standi fram í lok nóvember. Verksmiðjan tekur við afskurði frá síldarvinnslunni og fylgir því takti hennar.

Að jafnaði er unnið í tveimur skorpum í viku, í upphafi vikunnar og undir lok hennar. Hver vinnslulota tekur yfirleitt einn til einn og hálfan sólarhring.

Unnar segir góðan anda ríkja á vinnustaðnum. „Það er alltaf góð stemning í bræðslunni. Það er góður mannskapur hérna.“

Tíu ár við stjórnvölinn

Unnar kom til starfa hjá Vinnslustöðinni árið 2015 og vann fyrst með Sigga Friðbjörns, sem þá var farinn að huga að starfslokum. Hann tók við verksmiðjustjórn árið 2016 og hefur því gegnt starfinu í tíu ár.

Fjölbreytnin er það sem honum finnst einna áhugaverðast við starfið. Verkefnin spanna allt frá starfsmannamálum til tækjabúnaðar og skipulags vinnslunnar.

„Það er ótrúlega margt sem kemur til á hverjum degi,“ segir Unnar og bætir við að dagarnir geti verið óútreiknanlegir.

Kertið fer á strompinn

Í viðtalinu ber einnig á góma jólaskreytinguna á strompi verksmiðjunnar, sem er frá árinu 1925. Unnar segir elstu menn telja að strompurinn hafi verið skreyttur frá árinu 1973, þótt hann geti ekki sjálfur staðfest það.

Hefðinni verður haldið við þessi jól. „Við setjum klárlega kerti á hann.“

 

Play Video

Nýjustu fréttir

„Einsi Kaldi lokar þegar ég hef ekki metnað í eldhúsinu lengur“
Frá Heimaeyjargosinu til kostulegra sagna af Vellinum
Nýr sæstrengur en bræðslan gengur fyrir olíu
Herjólfur fellir niður ferðir
Frá Vestmannaeyjum í norska skóla 
Kyrrðarbæn í dag
Þór flutti sjúkling til Landeyjahafnar á hæsta forgangi
Setja frest á viðræður um sorpþjónustu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.