Frá Heimaeyjargosinu til kostulegra sagna af Vellinum
Fjórir rithöfundar lásu úr nýjum bókum á Safnahelgi :: Glæpir, leyndarmál, sorgir og skemmtilegar sögur :: Góð mæting og gestir þakklátir fyrir heimsóknina
Höfundarnir á fremsta bekk, frá vinstri: Þorgrímur Þráinsson, Margrét S. Höskuldsdóttir, Ásmundur Friðriksson og Steindór Ívarsson. Fjórir höfundar með fjórar ólíkar bækur sem vöktu áhuga gesta. Myndir/Óskar Pétur Friðriksson
Omar Betri
Ómar
Garðarsson

Það er alltaf tilhlökkunarefni þegar rithöfundar leggja leið sína til Vestmannaeyja á Safnahelgi og kynna nýútkomnar bækur sínar. Þetta er kærkomin tilbreyting sem Eyjafólk kann vel að meta. Að þessu sinni mættu fjórir höfundar til leiks og bækurnar voru jafnólíkar og þær voru margar. Þar komu við sögu glæpir og gömul leyndarmál, sorgir og uppgjör við fortíðina og loks kostulegar sögur af mannlífinu á Keflavíkurflugvelli á tímum bandaríska varnarliðsins.

Góð mæting var á upplesturinn í Sagnheimum laugardaginn þar sem þau Margrét S. Höskuldsdóttir, Steindór Ívarsson, Þorgrímur Þráinsson og Ásmundur Friðriksson kynntu nýjustu bækur sínar og gáfu gestum innsýn í ólíka söguheima. Úr varð skemmtileg bókmenntastund sem gestir kunnu vel að meta.

Heimaeyjargosið og gömul leyndarmál

Margrét S. Höskuldsdóttir reið á vaðið með glæpasöguna Eldur í öskunni leynist, sem hefur sérstaka tengingu við Vestmannaeyjar. Sagan hefst í Heimaeyjargosinu 1973 þegar þrjú systkini frá Eyjum eru send í fóstur vestur á firði. Fimmtíu árum síðar finnast mannabein á Dynjandisheiði og gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið.

Margrét hlaut Blóðdropann, íslensku glæpasagnaverðlaunin, árið 2025 fyrir bókina Lokar augum blám. Í nýjustu bókinni fléttar hún saman sögu Vestmannaeyja og Vestfjarða með spennandi hætti.

Steindór Ívarsson hélt spennunni áfram með Ótta, fjórðu glæpasögunni um rannsóknarlögreglukonuna Rúnu. Þar segir frá ungri konu sem finnst látin við fjölbýlishús í Reykjavík. Rannsóknin leiðir lögregluna inn í lokaðan trúarsöfnuð þar sem óhugnanleg leyndarmál koma í ljós. Steindór hefur á undanförnum árum vakið athygli fyrir spennandi glæpasögur og sterkar persónulýsingar.

Sorgir, uppgjör og kostulegar sögur

Þorgrímur Þráinsson leiddi gesti inn í annan heim með skáldsögunni Ég kom til að gráta. Þar segir frá manni á miðjum aldri sem heldur til Ólafsvíkur til að gera upp fortíðina. Sagan fjallar um sorg, áföll, fyrirgefningu og tilfinningar sem karlmenn hafa oft átt erfitt með að tjá.

Þorgrím þarf vart að kynna fyrir Eyjamönnum, enda einn þekktasti rithöfundur landsins og fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu. Nýjasta bókin sýnir alvarlegri hlið á höfundinum sem hefur í áratugi haft lag á að ná til lesenda á öllum aldri.

Ásmundur Friðriksson, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður rak síðan endahnútinn á dagskrána með bókinni Sögur af Vellinum. Þar rifjar hann upp mannlífið á Keflavíkurflugvelli á tímum bandaríska varnarliðsins, frá 1952 til 2006.

Í bókinni eru meðal annars viðtöl við tuttugu einstaklinga og fjöldi litríkra frásagna. Þar kennir ýmissa grasa, allt frá smygli og skrautlegum uppátækjum til samskipta Íslendinga og Bandaríkjamanna. Sögurnar eru margar hverjar með ólíkindum en jafnframt merkilegar heimildir um sérstætt samfélag.

Ásmundur er Eyjamaður og efur meðal annars skrifað bókina Strand í gini gígsins um Surtseyjargosið og mannlífið í Vestmannaeyjum.

Vel þegin heimsókn

Upplesturinn var ánægjulegur liður í fjölbreyttri dagskrá Safnahelgarinnar. Höfundarnir fjórir buðu upp á ólíkar frásagnir sem sýndu vel breiddina í íslenskri bókaútgáfu.

Gestir voru þakklátir fyrir heimsóknina og það er ljóst að bókmenntir eiga sinn sess á Safnahelgi í Vestmannaeyjum. Það er enda fátt notalegra á haustdegi en að hlýða á góða frásögn og fá um leið hugmynd að næstu bók á náttborðið. Eftir þessa stund í Sagnheimum höfðu gestir úr nógu að velja.

Þorgrímur las úr nýjustu skáldsögu sinni, Ég kom til að gráta, áhrifamikilli sögu um sorg, áföll, fyrirgefningu og uppgjör við fortíðina.
Ásmundur skemmti gestum með frásögnum úr bók sinni Sögur af Vellinum, þar sem rifjað er upp litríkt mannlíf, kostuleg uppátæki og ótrúlegar sögur frá tímum bandaríska varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli.
Kári Bjarnason, forstöðumaður Safnahúss kynnir rithöfundana fjóra sem lásu úr nýútkomnum bókum sínum á Safnahelgi í Sagnheimum. Góð mæting var á upplesturinn og gestir kunnu vel að meta heimsóknina.
Margrét las úr nýjustu glæpasögu sinni, Eldur í öskunni leynist, sem hefur sterka tengingu við Vestmannaeyjar. Sagan hefst í Heimaeyjargosinu 1973 þegar þrjú systkini frá Eyjum eru send í fóstur vestur á firði.
Steindór kynnti glæpasöguna Ótta, fjórðu bókina um rannsóknarlögreglukonuna Rúnu. Þar fléttast saman dularfullt dauðsfall, óhugnanleg leyndarmál og starfsemi lokaðs trúarsafnaðar.

Nýjustu fréttir

„Einsi Kaldi lokar þegar ég hef ekki metnað í eldhúsinu lengur“
Frá Heimaeyjargosinu til kostulegra sagna af Vellinum
Nýr sæstrengur en bræðslan gengur fyrir olíu
Herjólfur fellir niður ferðir
Frá Vestmannaeyjum í norska skóla 
Kyrrðarbæn í dag
Þór flutti sjúkling til Landeyjahafnar á hæsta forgangi
Setja frest á viðræður um sorpþjónustu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.