Fyrsti kjarasamningur sjómanna á smábátum frá 2012
trillur
Smábátar í Vestmannaeyjahöfn. Nýr kjarasamningur fyrir sjómenn á smábátum var undirritaður í morgun. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Nýr kjarasamningur fyrir sjómenn á smábátum var undirritaður í morgun. Samkvæmt honum greiða útgerðir 3,5 prósenta framlag í tilgreinda séreign sjómanna. Þetta er fyrsti kjarasamningurinn fyrir smábáta frá árinu 2012.

Sjómannasamband Íslands undirritaði samninginn við Landssamband smábátaeigenda og Samtök smærri útgerða. Fram kemur í tilkynningu Sjómannasambandsins að samningurinn sé í anda kjarasamningsins sem sjómenn gerðu við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi árið 2024.

Auk Sjómannasambandsins eiga Félag skipstjórnarmanna, VM – félag vélstjóra og málmtæknimanna og Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur aðild að samningnum.

Félagsmenn greiða atkvæði að lokinni kynningu

Samningurinn verður nú kynntur fyrir félagsmönnum og fer að því loknu í atkvæðagreiðslu. Hann er til ársins 2033 en útgerðir geta sagt honum upp árið 2028 og sjómenn árið 2029.

Nýjustu fréttir

Fyrsti kjarasamningur sjómanna á smábátum frá 2012
Líkn færir sjúkradeild HSU í Eyjum tvö ný tæki
Vont veður hrakti Eyjarnar af Gerpisflakinu
Handverks- og vörumarkaður í Höllinni
Steinunn sló botninn í Safnahelgina með húmor og frásagnargleði
Truflanir hjá Microsoft hafa áhrif
Jónína Einarsdóttir 100 ára
Rabbi á Dala-Rafni kvaddur – Ein vertíð stóð ævina á enda
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.