Segja skattóvissu draga úr hringsiglingum
Bókaðar eru 37 komur leiðangursskipa til Eyja árið 2027, samanborið við 46 í ár
Leiðangursskipið Le Champlain frá Ponant í Vestmannaeyjahöfn. Cruise Iceland nefnir Ponant sem dæmi um útgerð sem gerir ráð fyrir færri komum til Íslands á næstu árum vegna virðisaukaskatts á hringsiglingar. Mynd/TMS
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Bókanir gera ráð fyrir 37 komum leiðangursskipa til Vestmannaeyja árið 2027, samanborið við 46 í ár og 50 árið 2025. Gangi bókanir eftir fækkar komunum um 26 prósent á tveimur árum. Sigurður Jökull Ólafsson, framkvæmdastjóri Cruise Iceland, segir óvissu um virðisaukaskatt og tollfrelsi hafa fælt útgerðir frá hringsiglingum um Ísland.

Samkvæmt tölum sem Sigurður Jökull tók saman fyrir Eyjafréttir voru leiðangursskip rúmlega helmingur skemmtiferðaskipakoma til Eyja í ár. Alls komu skemmtiferðaskip 84 sinnum til Vestmannaeyja árið 2026 og námu hafnartekjur af þeim komum um 142 milljónum króna, samkvæmt yfirliti Cruise Iceland. Á næsta ári eru 73 komur skemmtiferðaskipa bókaðar, þar af 37 komur leiðangursskipa.

Nefnir Ponant sem dæmi

Sigurður Jökull segir að nokkur skipafélög sem hafa haft reglulega viðkomu hér á landi geri ráð fyrir umtalsvert færri komum á næstu árum vegna virðisaukaskatts á hringsiglingar. Hann nefnir frönsku útgerðina Ponant sem dæmi. Hún hefur um árabil gert út leiðangursskip í hringsiglingar um Ísland með Hafnarfjörð sem heimahöfn á meðan á siglingunum stendur.

Í svari sínu til Eyjafrétta tilgreindi Sigurður Jökull engar einstakar ferðir með fyrirhugaðri viðkomu í Vestmannaeyjum sem hefðu fallið niður vegna skattsins.

Cruise Iceland vill lagabreytingu

Sigurður Jökull segir að með breytingu á tollalögum árið 2012 hafi leiðangursskipum verið gert kleift að sigla umhverfis Ísland í fjóra mánuði á ári með farþega sem fljúga til og frá landinu. Að hans sögn hafi fyrirkomulagið stutt við atvinnulíf á fáfarnari viðkomustöðum utan suðvesturhornsins.

Hann segir að í leiðbeinandi bréfi Skattsins árið 2025 hafi komið fram að hringsiglingarnar féllu undir íslenska virðisaukaskattskerfið. Tollfrelsi skipanna hafi hins vegar verið viðhaldið með samþykkt Alþingis í lok sama árs.

Cruise Iceland vill að lögum verði breytt svo leiðangursskip í hringsiglingum njóti sömu kjara og skemmtiferðaskip í millilandasiglingum í allt að fjóra mánuði á ári, bæði hvað varðar virðisaukaskatt og tollmeðferð. Sigurður Jökull segir samtökin eiga í góðu samtali við stjórnvöld, ráðuneyti og Skattinn um málið.

Nýjustu fréttir

Segja skattóvissu draga úr hringsiglingum
Dýpkunarskipið Sebastiano Caboto í Vestmannaeyjahöfn
ÍBV steinlá gegn Fram í Eyjum
Frá briminu upp yfir bæinn – myndband
Eyjamenn vilja komast aftur á sigurbraut gegn Fram
Fjárlög 2027 með augum Sunnlendinga
Ráðherra þurfi að skýra hvernig lögreglan verði efld
ÍBV úr leik í Powerade bikarnum eftir tap gegn Stjörnunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.